Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hótuðu að sprengja upp hótelið sem íslensku keppendurnir gistu á – Vöknuðu við vopnaða verði

Frá Brussel.
Frá Brussel.

Spennan í Söngva­keppni evrópskra sjónvarps­stöðva eða Júróvisjón eins og hún er gjarnan kölluð hér á landi, hefur oft verið ansi rafmögnuð en þó aldrei eins og árið 1987 en þó af öðrum ástæðum en mjóum mun í stiga­talningunni.

Halla Margrét Árna­dóttir og Valgeir Guðjónsson fluttu hið fallega lag Hægt og hljótt í Söngva­keppni evrópskra sjónvarps­stöðva í Belgíu árið 1987. Þrátt fyrir að enda í 16. sæti keppninnar voru þau landi og þjóð til sóma. Óskabarn Írlands, Johnny Logan sigraði keppnina með stór­slagarann Hold Me Now. En það var þó eitt sem skyggði á annars vel heppnaða keppnina í Brussel en það voru sprengju­hótanir.

Kvöldi fyrir keppnina barst Ísraels­mönnum fleiri en ein sprengju­hótun en ein þeirra var tekin trúarleg. Þegar þeir Datner og Kushnir fluttu lag sitt fyrir Ísrael voru því öryggis­verðir í salnum við öllu búnir. Allt kom þó fyrir ekki og gátu þeir félagar flutt lagið án truflana.

Á sunnudags­morgun vöknuðu íslensku keppendurnir og fylgdarlið við læti frammi á gangi. Reyndur þar vera vopnaðir verðir með hríð­skotabyssur. Hafði þá borist enn ein hótuninn en hún snéri að því að sprengja ætti hótelið sem Ísraelar gistu á en þar gistu einmitt Íslendingarnir einnig. Sem betur fer sprakk engin sprengja þessa Júróvisjónhelgi.

DV fjallaði um málið á eftir­farandi máta:

Söngva­keppnin: Sprengju­hótanir hrella keppendur

Á meðan hin beina sjónvarps­útsending frá söngva­keppninni fór fram kom upp ákveðið merki á töflunni, þar sem stigin birtust, þegar Ísraels­mennirnir voru að syngja og þýddi það að öryggis­verðirnir í salnum mættu búast við hinu versta. Kom það til af því að meira en ein sprengju­hótun hafði borist um kvöldið og gerði lögreglan undan­tekningu á einni hringingunni. Þeim, sem hringdi, var trúað.

Á meðan stigin voru gefin var maður tekinn fastur í Atomim sem er um 300-400 metra frá sýningar­höllinni en hann hljóp þar um með byssu í hendi. Reyndist hann síðar vera starfs­maður ísraelska sendi­ráðsins og var honum þá sleppt.

Þegar Íslendingarnir vöknuðu á sunnudags­morgun heyrðu þeir allir að eitthvað var að gerast frammi á gangi og þegar þeir kíktu fram sáu þeir vopnaða verði með hríð­skotabyssur. Kom það til af því að einnig hafði borist hótun um að sprengja upp hótelið sem Ísraelar voru á og þar með einnig Íslendingar.

Fjögur ungmenni létu lífið í bílslysi þegar þau voru að koma heim af Evrópu­söngva­keppninni. Það var dóttir fyrsta sendiráðs­ritara Ísraels ásamt ökumanni sem var Spánverji og tveimur belgískum systrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni