Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

„Ógeðslegasta frumvarp sem lagt hefur verið fram – Íslendingar vilja bjóða fólk á flótta velkomið“

Aðalheiður Ámundadóttir
Aðal­heiður Ámunda­dóttir

Lög- og blaða­maðurinn Aðal­heiður Ámunda­dóttir kann að munda pennann og segir í pistli að „þótt rasistar leynist í flestum íslenskum stjórn­málaflokkum hafa þjóðernis­sinnar og flokkar sem hafa útlendinga­andúð og rasisma sem sitt helsta stefnumál aldrei unnið kosninga­sigra hér, líkt og í sumum nágranna­ríkjum okkar.“

Hún bætir við að „mikill meirihluti Íslendinga vill bjóða það fólk velkomið sem leitar skjóls hjá okkur og langflestum okkar er alveg sama hvort einhver önnur Schengen-þjóð hafi áður lofað skjóli. Ef fólk vill búa hér hjá okkur frekar en í Grikk­landi, höfum við bæði nóg pláss og næga vinnu.“

Katrín Jak­obs­dóttir er for­sæt­is­ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn VG, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Að mati hennar er þó hængur á því „svo virðist þó sem báðar hendur ríkis­stjórnarinnar séu bundnar. Lögin standa í vegi fyrir gestrisni hennar. Útlendinga­andúðin er í lögunum og þeim þarf því miður að fram­fylgja. Þetta er kunnuglegt stef; í hvert skipti sem íslenska þjóðin rís upp gegn illsku í garð flótta­fólks beita ráðherrar löggjöfinni sem málsvörn.“

Aðal­heiður vekur máls á því að „af þessum sökum hefur endur­skoðun útlendinga­laga staðið yfir næstum sleitu­laust frá arabíska vorinu þegar mikill straumur flótta­fólks leitaði til Evrópu í leit að skjóli. Það kemur því ekki á óvart að nú kalli ráðherrar ríkis­stjórnarinnar eftir heildar­umræðu um útlendinga­löggjöfina. Við erum flest sammála um að eyða þurfi útlendinga­andúð úr lögum. En það er með hatrið eins og margt sem sprottið er af illum rótum. Því er komið fyrir milli lína og undir rós. Hverju skrefi í átt til meiri mannúðar fylgir líka aukin illska. Þrátt fyrir að útlendinga­andúðin nái aldrei kjöri ræður hún því að gest­risnin fær aldrei að vera markmið laganna heldur skilvirkni.“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra

Hún segir að „í frumvarpi dómsmála­ráðherra sem nú er til meðferðar á Alþingi er lagt til að allar synjanir Útlendinga­stofnunar kærist sjálf­krafa til kæru­nefndar um útlendingamál. Lítur vel út samkvæmt orðanna hljóðan en þýðir í raun að umsækjandinn hefur mun styttri tíma til að undirbúa varnir sínar gegn brott­vísun. Þrengja á að mögu­leikum fólks til fjölskyldu­sameiningar og heimila Útlendinga­stofnun að skerða eða fella niður rétt hælis­leitenda til grunn­þjónustu á borð við fæði, húsnæði og nauðsyn­lega heilbrigðis­þjónustu þegar ákvörðun um brott­vísun liggur fyrir.“

Aðal­heiður bætir þessu við í lokin:

„Það er ekki að ástæðu­lausu að þetta frumvarp hefur verið kallað ógeðslegasta frumvarp sem lagt hefur verið fram. Svona er afrakstur heildar­umræðu um útlendinga­löggjöfina. Það er trúnaðar­brestur í þessum mála­flokki sem er tilkominn af því að venju­legir Íslendingar vilja bjóða fólk á flótta velkomið en stjórn­völd vilja reka það á dyr með skilvirkum hætti. Í því liggur ágrein­ingurinn en ekki í laga­tæknilegum útfærslum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto