Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Herferð gegn lúpínu í Drangavík: „Ég var spurð að því hvort ég hafi sáð henni“

Vaskir liðsfélagar slá lúpínu í Drangavík Mynd/Lovísa Guðbrandsdóttir
Vaskir liðs­fé­lagar slá lúpínu í Dranga­vík Mynd/Lovísa Guð­brands­dóttir

Vaskur her manna mætti til Dranga­víkur á dögunum til að uppræta lúpínu­breiður sem hafa sáð sér á svæðinu. Alaska­lúpínan er ágeng planta sem veldur miklum breytingum í náttúru­fari. Mannlíf hafði samband við Láru Ingólfs­dóttur, einn af land­eigendum Dranga­víkur, sem staðið hefur fyrir upprætingu lúpínunnar á svæðinu.

„Við vorum tólf sem fórum norður í Drangavík og við vorum með fjögur slátturorf,“ segir Lára. Hópurinn saman stendur af vinum hennar og vinum þeirra. „Ætli við höfum ekki verið í um þrjá tíma að þessu. Fjórir á orfum og restin að tína og reita litla anga sem hafa sáð sér.“

Lúpínan tínd og reitt Mynd/Lovísa Guð­brands­dóttir

Blaða­maður spurði hvort lúpínan hafi náð að breiða sér yfir stórt svæði: „Það er þarna einn dálítill flekkur af lúpínu og annar minni,“ svarar hún og segir aðgerðina hafa gengið afskaplega vel og að hópurinn hafi fengið yndislegt veður.

Þetta er í fjórða skiptið sem hópurinn slær lúpínuna en hann komst ekki í fyrra sökum slæms veðurs. „Það þarf fernt að fara saman, við þurfum að hafa mannskap, við þurfum að hafa hús, við þurfum að hafa bát og við þurfum að hafa veður,“ útskýrir Lára og bætir við: „Í fyrra var allt til staðar nema veðrið.“

Lúpínan á undanhaldi vegna aðgerðanna

Aðgerðirnar bera árangur og þrátt fyrir að hafa náð að sá sér í fyrra aftur segir Lára að árangurinn sé augljós og lúpínan sé að hörfa.

Við upprifjun telur Lára að það séu að verða komin sex ár síðan hún fyrst fékk fregnir af lúpínu á svæðinu og ákvað strax að gera eitthvað í málinu.

Óljóst hvernig plantan hefur sáð sér

Land­svæðið sem umræðir er ekki stórt og finnst Láru tilkoma og sáning plöntunar á svæðinu skrítin – þar sem svæðið er ekki í alfara­leið. „Þeir sem fara norður á Strandir ganga um Dranga­víkina en eiga ekkert leið þarna,“ útskýrir Lára. Erfitt er að átta sig á hvernig lúpínan hefur sáð sér á svæðinu og hafa fræðimenn gefið út að fuglar til dæmis beri ekki lúpínufræ.

Úr vörn í sókn

Aðspurð hvort að Lára hafi fengið á sig ásakanir um að hafa sjálf sáð lúpínunni á svæðinu svarar hún: „Því var kastað fram í rælni og það var nú þess vegna sem ég fór í málið.“ „Ég var spurð að því hvort ég hafi sáð henni, þá ákvað ég að gera eitthvað í málinu,“ segir Lára létt í lundi og nefnir að það hafi meira verið í gríni sagt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá