Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Góður yfirmaður á Íslandi fylgir ekki sömu forskrift og erlendis

Skerum okkur úr á heimsvísu

Íslendingar gera meiri kröfur um samráð, gagnsæi og þátttöku starfs­manna en nokkur önnur þjóð í heiminum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýjum áfanga GLOBE-rann­sóknarinnar, umfangsmestu alþjóð­legu samanburðar­rannsóknar á forystu og menningu sem gerð hefur verið, en Ísland tekur nú þátt í verk­efninu í fyrsta sinn.

Rann­sóknin nær til 134 samfélaga þar sem yfir 95% jarðarbúa búa. Niður­stöðurnar, sem birtar voru í hinu virta vísinda­tímariti Journal of World Business, sýna að hugmyndir um fram­úrskarandi forystu eru að miklu leyti mótaðar af samfélaginu og menningunni sem við búum í. Íslenski hluti rann­sóknarinnar er leiddur af Ingu Minelgaité, Svölu Guðmunds­dóttur og Inga Rúnari Eðvarðs­syni, prófessorum við Viðskipta­fræði­deild Háskóla Íslands, en þau fóru yfir rann­sóknina í samtali við HÍ.

Skerum okkur úr á heimsvísu

Ísland vekur strax mikla athygli í rann­sókninni og sker sig úr á tveimur lykil­sviðum. Þegar kemur að svokallaðri þátttöku­miðaðri forystu lendir Ísland í efsta sæti af öllum 134 þátttöku­löndunum með einkunnina 6,28.

Að sögn Svölu Guðmunds­dóttur bendir þetta til þess að hér á landi séu gerðar sérstak­lega ríkar kröfur um að leiðtogar hafi samráð og gæti gagnsæis við ákvarðana­töku.

Þá er Ísland jafnframt hæst Norður­landanna þegar kemur að stefnu­miðaðri fram­tíðarsýn með einkunnina 6,19, en meðal­talið í rann­sókninni var 6,10. „Góður íslenskur leiðtogi á samkvæmt niður­stöðunum því ekki aðeins að leita samráðs heldur jafnframt að hafa skýra sýn á fram­tíðina og geta virkjað fólk til að vinna að henni,“ segir Svala í samtali við HÍ um niður­stöðurnar.

Góð forysta fer ekki eftir sömu forskrift

Inga Minelgaité bendir á að rann­sóknin sýni fram á að stjórnunar­hættir sem virka vel í einu samfélagi þurfi ekki sjálf­krafa að hafa sömu áhrif í öðru. Þekking á menningar­legum mun verði sífellt mikil­vægari eftir því sem fyrirtæki og stofnanir starfa í auknum mæli þvert á landamæri. Niður­stöðurnar nýtast því sem dýrmætur þekkingar­grunnur fyrir íslenska stjórn­endur til að auka sjálfs­þekkingu og efla stjórnenda­þjálfun hér á landi.

Aðkoma Háskóla Íslands að verk­efninu varð til í gegnum virkt samstarf við Academy of Management. Ingi Rúnar Eðvarðsson leggur áherslu á mikilvægi þess að háskóla­kennarar hafi stuðning til að taka þátt í alþjóð­legu fræða­starfi sem þessu, en fyrir­hugað er að skrifa fleiri vísinda­greinar byggðar á gögnum rann­sóknarinnar á næstunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning