Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Britney lýsir kynlífi hennar og Farrell við „götubardaga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“

Britney og Colin, hugsanlega að detta í slagsmál.
Britney og Colin, hugs­an­lega að detta í slags­mál. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Britney Spears líkir kyn­lífi sínu með Colin Farrell við „götu­bar­daga“, í nýrri ævi­sögu, sem beðið er með óþreyju en bókin heitir The Woman in Me.

Hin 41 ára poppprinsessa, átti tveggja vikna ást­ar­æv­in­týri með írska stór­leik­ar­anum Colin Farrell árið 2003, stuttu eftir að hún hætti með Justin Tim­berlake. Britney hitti Colin í gegnum vin sinn en hún sagði að þau hefðu orðið nán­ari eftir að hún heim­sótti hann við tökur á kvik­mynd hans S.W.A.T. sem kom út árið 2003.

Britney hefur nú opnað sig um kynni þeirra og segir að þau hefðu átt í „ástríðu­fullu“ ævin­týri. Afhjúp­unin kemur nú fram þrátt fyrir fregnir af því að hún hafi þurft að fresta útkomu sjálfævi­sögu sinar vegna áhyggja af mögu­legum mála­ferlum Colins, vegna þess sem ritað er um hann í bók­inni.

„Slagsmál er eina orðið yfir þetta – við vorum hvort yfir öðru, við glímdum svo ástríðu­fullt að það var eins og við værum í götu­slags­málum,“ skrif­aði Britney í bók­ina. Þrátt fyrir þetta sagði Colin, eftir að hún hafði mætt með honum á frum­sýn­ingu kvik­mynd­ar­innar The Recruit árið 2003, sagði hann frétta­mönnum að þau væru „bara félagar“.

Í bók­inni við­ur­kennir Britney að hún hafi ekki verið búin að jafna sig á þriggja ára ást­ar­sam­bandi sínum með Justin Tim­berlake, þegar hún var að hitta Colin. „Eins og ég hafði gert áður, þá fannst mér ég of háð manni. Ég reyndi að sann­færa mig á hvaða hátt sem ég gat, að þetta væri ekk­ert stór­mál, að við værum bara að leika okkur,“ skrif­aði hún en TIME birti brot úr bók­inni.

Popp­stjarnan sagði að hún hefði verið „ber­skjölduð“ eftir sam­bands­slitin við Justin. Hún við­ur­kenndi einnig að „í stutta stund“ hafi hún haldið að ást­ar­æv­in­týri hennar og Colin gæti orðið eitt­hvað meira.

Britney og Justin byrj­uðu að hitt­ast þegar þau voru 17 og 18 ára, árið 1998, eftir að hafa hist við tökur á The Mickey Mouse Club, fimm árum áður. Þau voru par til áris­ins 2002, þegar hún byrj­aði með Wade Robson.

Wake og Britney hættu sam­bandi sínu ári síðar, rétt áður en hún átti í stuttu ást­ar­sam­bandi við Colin. Heim­ildir erlendra slúð­ur­síða herma að Britney hafi neyðst til að fjar­lægja nokkrar stað­hæf­ingar í bók­inni vegna hót­ana um mál­sókn frá lög­mönnum Colin og Justin.

„Lögmenn kröfð­ust þess að sjá bók hennar fyr­ir­fram og voru harðir á því að sumar opin­ber­anir yrðu fjar­lægðar. Það eru þó enn fullt af geggj­uðum sögum í bók­inni en Tim­berlake og Farrell höfðu áhyggjur af því hvað yrði sagt um þá í henni,“ sagði upp­ljóstr­ari við The Sun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027