Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Illugi minnist Ragnheiðar Erlu

„Átti mestan þátt í sigrinum“

Guðjón, Ragnheiður og Illugi
Guðjón, Ragn­heiður og Illugi Reyk­vík­ingar stóðu uppi sem sig­ur­veg­arar Mynd: Facebook

Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðla­maður, minnist séra Ragn­heiðar Erlu Bjarna­dóttur sem lést á dögunum, í færslu á Facebook.

Í færslunni rifjar Illugi upp þátttöku þeirra saman í spurninga­keppninni Hvað heldurðu? veturinn 1987–88, þar sem lið Reykja­víkur bar sigur úr býtum. Hann segir Ragnheiði hafa gegnt lykil­hlutverki í þeim árangri:

„Það fór ekkert milli mála að það var guðfræðingurinn fjölfróði Ragn­heiður Erla Bjarna­dóttir sem átti mestan þátt í að við náðum að lokum að landa sigri í keppninni.“

Keppnin, sem Ómar Ragnarsson stýrði og Baldur Hermannsson samdi spurningar fyrir, naut vinsælda á sínum tíma og segir Illugi að mikil stemning hafi ríkt meðal þátt­takenda. Meðal liðs­félaga voru einnig Guðjón Friðriksson og Flosi Ólafsson.

Illugi lýsir Ragnheiði sem eftir­minnilegri manneskju og segir kynni þeirra hafa verið ánægjuleg, bæði á meðan keppnin stóð yfir og síðar:

„Það var reglulega gaman að kynnast þessari svipmiklu konu þennan vetur og þótt kynnin væru stopul síðan fór alltaf vel á með okkur, þá við hittumst á förnum vegi.“

Að lokum vottar hann aðstand­endum hennar samúð og heiðrar minningu hennar:

„Nú sé ég að hún er látin og ég votta ástvinum hennar samúð og henni sjálfri alla mína virðingu, bæði fyrir þessi ágætu kynni og nátt­úrlega sjálfan sigurinn í Hvað heldurðu?“

Hægt er að horfa á rimmu Akureyrar og Reykja­víkur í keppninni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Minning

Séra Hjalti Þorkelsson er fallinn frá

„Og nú er hann floginn á braut í morgun­birtunni, dáinn, horfinn, harma­fregn“

„Guðjón var með ótrúlega áru og persónu­töfra“

Guðjón Þórðarson er fallinn frá

Borgþór Vestfjörð Kjærnested er fallinn frá