Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Paola Cardenas: „Allir hafa upplifað kvíða einhvern tímann á ævinni, jafnvel börn“

Paola Cardenas
Paola Cardenas

Paola Cardenas er barna­sálfræðingur, fjölskyldu­fræðingur og doktorsnemi í sálfræði við HR og hún er auk þess formaður innflytendaráðs. Hún hefur starfað í Barnahúsi sem og hjá Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja, Rauða krossi Íslands og á barna- og unglinga­geðdeild Land­spítalans.

Paola hefur í samvinnu við Soffíu Elínu Sigurðar­dóttur, sem einnig er barna­sálfræðingur, skrifað þrjár bækur. Í fyrra komu út bækurnar Súper Viðstödd sem er ætlað að kenna börnum um núvitund og hugræna atferlis­meðferð og hin bókin var Súper Vitrænn sem á að kenna börnum hugræna atferlis­meðferð. Nýjasta bókin heitir Súper Vinalegur og fjallar um feiminn dreng sem á svolítið erfitt með að kynnast nýjum krökkum og finnur fyrir kvíða. „Tilgangur bókarinnar er að kenna hvað er kvíði, hver eru algengustu einkenni kvíða hjá börnum og svo aðferðir til þess að takast á við kvíða í félags­legum aðstæðum.“

Það er svo gott fyrir börn að vita að kvíði er eðli­leg til­finn­ing.

Paola segir allir upplifa kvíða og að kvíði sé eðlileg tilfinning sem allir upplifa á einhverjum tíma­punkti í lífinu. „Hann getur hjálpað og jafnvel bjargað lífi okkar þegar við erum í hættu stödd. Vanda­málið er þegar kvíðinn er lamandi. Þegar fólk fer að upplifa kvíða stöðugt í sömu aðstæðum þá fer það að hræðast það meira og meira og getur þróað með sér fælni eins og félags­fælni. Það er svo gott fyrir börn að vita að kvíði er eðlileg tilfinning og að það er gott að fara út úr þæginda­hringnum og prófa það sem þau eru hrædd við en það þarf stundum að hjálpa þeim að stíga fyrstu skrefin.“

Paola segist hafa þurft að takast á við kvíða sem barn og fór henni að líða betur eftir að hún hitti sálfræðing sem kenndi henni leiðir til að takast á við kvíða.

Í skól­anum var okkur kennt hvernig við ættum að bregð­ast við ef það kæmi sprengju­hótun.

Hún er frá Venezuela en ólst upp í nokkur ár í Kólumbíu, frá því hún var sex ára til 13 ára, þar sem faðir hennar, sem er verk­fræðingur, vann. „Það var svo mikið ofbeldi í Kólumbíu,“ segir hún og nefnir sprengingar í verslunar­miðstöðvum, þar sem hún fór stundum, og hún talar um myndir í dagblöðum þar sem voru til dæmis myndir af mönnum sem höfðu verið afhöfðaðir. „Besta vinkona mín bjó ásamt fjöl­skyldu sinni í byggingu þar sem banki var á jarð­hæðinni og einn daginn varð sprenging í bankanum og mamma vinkonu minnar missti fóstur í kjölfarið. Í skólanum var okkur kennt hvernig við ættum að bregðast við ef það kæmi sprengju­hótun en ég var í einka­skóla þar sem voru meðal annars börn stjórn­málamanna. Þetta var ofboðs­lega erfitt og þetta allt var ástæða fyrir því að fjöl­skyldan ákvað að flytja aftur til Venezuela. Ég var allltaf hrædd og ég upplifði kvíða, streitu og álag. Mér líður óþægilega bara með því að tala um þetta. Ég fann fyrir kvíða sem barn í Kólumbíu og þetta var stundum svolítið erfitt. Ég átti líka erfitt með að aðlagast nýjum aðstæðum og fór til sálfræðings en fyrst var farið með mig til læknis af því að mér var alltaf illt í maganum og var flökurt. Ég hélt það væri eitthvað að mér. En svo var þetta allt í hausnum á mér.“

Stuðningur vina mikilvægur

Árin liðu og Paola stundaði sitt nám og fór síðan 17 ára sem skipti­nemi til Bandaríkjana þar sem hún kynntist íslenskum stráki. Hún ákvað svo að koma til Íslands eftir skiptinema­árin og prófa að búa hér í tvö ár. Hún lauk stúdents­prófi frá Fjölbrauta­skólanum í Garðabæ og síðan fluttu hún til Boston þar sem hún stundaði BSc nám í sálfræði. Paola fluttu svo aftur til Íslands árið 2001 og lauk Cand.psych. nám í sálfræði árið 2007.

Bak­grunnur þeirra er mjög ólíkur bak­grunni barna á Íslandi.

Paola vinnur sem barna­sálfræðingur í Barnahúsi og viðurkennir að reynsla sín af kvíða á æsku­árunum hjálpi henni að skilja sjólstæðinga sína. „Ég tek til dæmis viðtöl við börn sem sækja um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Bakgrunnur þeirra er mjög ólíkur bakgrunni barna á Íslandi. Þau hafa upplifað ofboðs­lega erfiða hluti þannig að þetta eru börn sem eru mjög berskjölduð og þurfa mikið utan­umhald. Það er ekki nóg að þau fari inn í kerfið heldur þurfa þau líka auka­þjónustu að mínu mati. Það þarf að meta líðan þeirra og það þarf eitthvað prógramm að vera í gangi fyrir þau því annars muna þau eiga erfitt með að aðagast og vera partur af samféaginu.“

Paola er í doktors­námi í HR og einblínir í rannsókn sinni á börn og ungmenni sem sótt hafa um hæli á Íslandi. „Það sem hefur komið í ljós er að stuðningur frá vinum er mjög mikil­vægur fyrir líðan þeirra. Flest þeirra hafa upplifað áföll og þróað með sér einkenni þung­lyndis og áfalla­streitu­röskunar. En stuðningur frá vinum kemur í raun og veru í veg fyrir að þau þrói með sér áfalla­streitu­röskun.“

Paola var fyrr á þessu ári kosin formaður innflytjenda­ráðs. „Það er til að vera ráðherra til ráðgjafar. Við vorum að auglýsa styrk – Þróunar­sjóð innflytjenda – en stofnanir og samtök eru núna að sækja um og er umsóknar­fresturinn 1. desember þannig að ég er spennt að fara að skoða allar umsóknirnar. Áherslurnar á þessu ári er að hjálpa ungmennum að aðlagast íslensku samfélagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning