Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Andlát eftir bólusetningu hérlendis til rannsóknar

Íslend­ingur sem nýlega voru bólu­settur vegna Covid-19 er látinn og hefur tilvikið verið tilkynnt til Lyfja­stofnunar sem alvarlegar aukaverkanir bóluefnis Pfizer. Bæði Rúna Hauks­dóttir Hvannberg forstjóri og Alma Möller land­læknir segja þó allsendis óvíst að viðkomandi hafi látist vegna bólu­efnisins því um var að ræða aldraðan einstakling með ýmsa undir­liggjandi sjúkdóma.

Andlátið er til skoðunar ásamt níu öðrum kvörtunum sem liggja á borði Lyfja­stofnunar vegna aukaverkana bólu­efnisins. Í samtali við Mannlíf segir Rúna þær langflestar snúa að mjög hefð­bundnum auka­verkunum bólu­setninga. „Við leggjum áherslu á að til okkar sé tilkynnt um allar aukaverkanir og flestar þær tilkynningar sem við höfum fengið er eitthvað sem búist var við. Það er ein alvarleg komin sem snýr að dauðsfalli en það er erfitt að tengja það beinlínis við bólefnið því þar er um að ræða lang­veikan sjúkling með töluvert af undir­liggjandi sjúkdómum. Í þessari fyrstu umferð erum við að bólusetja háaldrað fólk,“ segir Rúna.

Rúna Hauks­dóttir Hvann­berg, for­stjóri Lyfja­stofn­unar.

Rúna segir að mörg jákvæð teikn séu á lofti í bólu­setningar­málum hérlendis og vonir standi til að ljúka bólu­setningum á árinu þrátt fyrir svartsýnispár sumra. Aðspurð hvort hún sjálf sé búin að merkja drauma­dagsetningu í dagatalið sitt segir hún svo ekki vera. „Þetta er bara áfram veginn en ég sé ekki ennþá hversu langur vegurinn er. Það er óhætt að segja að þessi faraldur hefur komið okkur mjög á óvart. Aðal­atriðið er að við erum bráðum að fá fjögur bóluefni gegn Covid og það eru mjög jákvæðar fréttir miðað við bara fyrir nokkrum mánuðum. Miðað við hversu hratt allt hefur gengið núna tel ég það ekki rétt að við náum ekki að klára á árinu. Ég trúi því. Við erum að vinna í þessu dag og nótt,“ segir Rúna.

Uppfært kl: 17:25

Eftir að frétt Mannlífs birtist fyrr í dag hefur verið greint frá því að andlátin séu nú þrjú til rann­sóknar sem og 16 tilkynningar á heildina um aukaverkanir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið