Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Persónuvernd sektar Hörpu um eina milljón: Gestur vildi ekki gefa upp kennitölu

Frambjóðendur skiluðu undirskriftarlistum í Hörpu
Fram­bjóð­endur skil­uðu und­ir­skrift­ar­listum í Hörpu

Persónu­vernd hefur dæmt tónlistar- og ráðstefnu­húsið Hörpu til að greiða eina milljón króna í sekt, fyrir að hafa krafist þess að tónleika­gestur gæfi upp kennitölu sína til að geta keypt miða á viðburð í húsinu. Samkvæmt Persónu­vernd braut Harpa með þessu lög og er það tekið fram að sektin hefði getað orðið hærri ef ekki hefði verið fyrir Covid-19. Þá hafi þessar upplýsingar verið nauðsynlegar og hreinlega skylda, vegna sóttvarnar­reglna.

Á RÚV kemur fram að gesturinn sem um ræðir hafi kvartað yfir málinu til Persónu­verndar í apríl fyrir þremur árum síðan.

Gesturinn var ósáttur við að þurfa að skrá kennitölu sína til að kaupa miða á viðburð í Hörpu. Miðasala Hörpu fer fram í gegnum miða­sölukerfi Tix.is og sagði gesturinn að Tix hefði upplýst hann um að nóg væri að skrá fyrstu sex tölu­stafina í kenni­tölunni – sem sagt fæðingardag og ár. Gesturinn vildi hins vegar ekki heldur una því og taldi víst að ekki væri þörf á svo nákvæmum persónu­upplýsingum við miðakaup.

Fleiri viðburðahaldarar með sama háttinn á

Fyrir­komulag Hörpu hefur ávallt verið með þessum hætti og eru fleiri viðburða­haldarar með sama háttinn á. Svöruðu forsvars­menn Hörpu umkvörtunum gestsins á þann veg að nauðsynlegt væri að fá kennitölu til þess að hægt væri að tryggja örugga persónu­greiningu þegar miðar væru sóttir í miðasölu. Þar væru gestir beðnir um nafn og kennitölu og þyrftu einnig að framvísa persónu­skilríkjum til að fá miðann sinn afhentan.

Hjá Hörpu hefur ávallt verið lögð áhersla á öryggi í miða­kaupum og að lágmarka alla hættu á að miðar komist í rangar hendur.

Á RÚV segir að Harpa hafi lagst gegn því að sekt yrði lögð á húsið vegna málsins, enda væri löng hefð fyrir því hjá viðburða­höldurum á Íslandi að skrá kennitölu við miðakaup, í öryggis­skyni fyrir miða­eigendur og til að tryggja auðkenningu.

Ekki nauðsynlegt að safna upplýsingunum

Persónu­vernd vildi ekki fallast á rökstuðning tónlistar­hússins í úrskurði sínum. Þar segir að ekki hafi verið nauðsynlegt að safna þessum upplýsingum því hægt hefði verið að efna samninginn án þess. Ennfremur segir að notkun kennitölu sé háð því að hún eigi sér málefna­legan tilgang og sé nauðsynleg til að tryggja örugga persónu­greiningu.

Í ljósi þessa hefur Hörpu því verið gert að hætta að fara fram á kennitölu gesta og eyða þeim upplýsingum sem þegar eru til staðar.

Persónu­vernd sektaði Hörpu um eina milljón. Tekið var fram að sektin hafi ekki verið hærri vegna þess að fyrir­komulagið hafi sannarlega verið nauðsynlegt þegar sóttvarnar­reglur kröfðust þess og því ekki hægt að afnema það fyrr.

Í úrskurði Persónu­verndar segir að einnig hafi verið horft til þess að upplýsingunum hafi verið safnað í góðri trú um að vinnslan væri lögmæt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis