Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hljómsveitin Ormar slá í gegn – Hyldýpi trónir á toppi X-Dominos listans

Bandið Ormar
Bandið Ormar Mynd: Aðsend

Hljóm­sveitin Ormar steig óvænt inn í íslenskt tónlistarlíf fyrr á árinu þegar þau gáfu út EP plötuna „Grugg“. Í byrjun nóvember gáfu þau út lagið Hyldýpi, sem er fyrsta útgefna lag á komandi plötu þeirra, en lagið trónir nú á toppi X-Dominos vinsælda­listans hjá útvarps­rásinni X-977.

Ormar og Jack Daniels

Samkvæmt hljóm­sveitar­meðlimum hafa viðtökur á laginu farið langt fram úr væntingum, en Ormar fundu frá fyrsta degi fyrir gríðar­legum áhuga frá hlustendum og útvarps­fólki. Hyldýpi fékk strax talsverða útvarps­spilun og tók 2. sæti X-Dominos vinsælda­listans aðeins nokkrum dögum frá útgáfu­degi lagsins. Lagið hélt því sæti í tvær vikur þar til það smeygði sér á toppinn síðastliðinn miðvikudag. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Ormar taka toppsætið, en þó rötuðu tvö lög af plötunni “Grugg” á listann fyrr á árinu. Það voru lögin „Aftur á bak“ og „Aðeins hærra“, en það síðarnefnda sat í 2. sæti listans fimm vikur í röð.

Ormar heimsóttu Ómar Úlf, þátta­stjórnanda og dagskrár­stjóra X977 fyrir skömmu og sögðu frá laginu í stuttu viðtali. Þar greinir Elvar Bragi, söngvari og gítar­leikari Orma frá því að textinn fjalli um einelti. Hlusta má á viðtalið hér.

Ormar ætla að halda áfram að kynna komandi EP plötu á nýju ári með útgáfu á fleiri lögum. Í byrjun janúar kemur næsta lag og platan „Hvenær verð ég full­orðinn?“ verður svo aðgengileg í heild á streymis­veitum í fyrri hluta árs.

Ormar eru:

Elvar Bragi Kristjónsson (gítar og söngur)

Hörður Þórhallsson (bassi og söngur)

Sólrún Mjöll Kjartans­dóttir (trommur)

Ormar á Spotify: https://open.spotify.com/artist/1um1xSfxPhCe3ncQWmjFnh?si=dOdTUUr8Qh26-BSYHyUufg

Hyldýpi á Spotify: https://open.spotify.com/track/1UVUWTtUwYkbcOkmNlTZX9?si=ea7d508a3ecf4634

Ormar á instagram: https://www.instagram.com/band_ormar/

Þess má geta að Ormar spila á Lemmy kl. 22 í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt