Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Stórhætta á að Vogur lokaði

Krísu­stjórnun á hverjum degi eftir átök stjórnar og starfs­fólks

Djúpstæður ágreiningur og hópuppsagnir hjá SÁÁ
Djúp­stæður ágrein­ingur og hóp­upp­sagnir hjá SÁÁ Ný yfir­stjórn ráðin til að afstýra lokun Mynd: SÁÁ

Mikil ólga ríkir innan SÁÁ og einkennist staðan á sjúkra­húsinu Vogi af krísu­stjórnun alla daga. Fastir hnútar hafa myndast á milli stjórnar samtak­anna og stórs hluta starfs­fólks á meðferðar­sviði í kjölfar afsagnar forstjóra og lykil­starfsmanna. Á meðan stjórnin telur ágreininginn snúast um framtíðar­stefnu félaga­samtakanna, sakar fráfar­andi lækninga­stjóri stjórnina um óeðlileg afskipti af heilbrigðis­þjónustu.

Anna Hildur Guðmunds­dóttir formaður SÁÁ sagði í Kastljósi í fyrra­kvöld að deilurnar megi rekja til ágrein­ings milli stjórnar og Ragn­heiðar Huldu Friðriks­dóttur, fyrr­verandi forstjóra, um hlutverk samtak­anna og víðfeðmi starfseminnar. Hún telur það hlutverk ekki stangast á við heilbrigðis­starfið og hafnar því alfarið að stjórnin hafi skipt sér af faglegu starfi lækna.

Sú lýsing stangast hins vegar á við málflutning Valgerðar Rúnars­dóttur, fráfar­andi framkvæmda­stjóra lækninga, sem einnig ræddi við Kastljós í vikunni. Valgerður fullyrðir að stjórnin hafi sýnt af sér óeðlileg afskipti og að brottför forstjórans hafi verið skipulögð af hálfu stjórnarinnar til að bola henni úr starfi.

Átökin hafa rist djúpt inn í raðir starfs­fólks en yfir 60 starfs­menn á meðferðar­sviði undir­rituðu vantrausts­yfirlýsingu á hendur stjórninni. Þá kröfðust framkvæmda­stjóri lækninga og fagstjóri meðferðar­stöðvarinnar í Vík þess að forstjórinn yrði fenginn aftur til starfa. Stjórnin varð ekki við þeim kröfum.

Í kjölfar hópuppsagna lykil­starfsmanna boðaði Embætti land­læknis stjórn SÁÁ á fund. Skilaboð embættisins voru afdráttar­laus: Ef ekki yrði ráðinn nýr framkvæmda­stjóri lækninga tafar­laust til að bera ábyrgð á sjúkra­skrám og sjúkra­húsinu, myndi starfsemi Vogar stöðvast.

Til að bregðast við kröfunum og halda starfseminni gangandi hefur stjórnin skipað nýja yfir­stjórn. Baldvina Ýr Hafsteins­dóttir hefur verið ráðin sem nýr forstjóri SÁÁ, Konráð Gylfason tekur við sem forstjóri á Vogi og Jón Áki Jensson, geðlæknir, bætist í hópinn sem nýr framkvæmda­stjóri lækninga. Embætti land­læknis fylgist nú náið með gæðum og öryggi þjónustunnar við sjúklinga á meðan unnið er úr krísunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning