Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Blóm, pastellitir og einfaldar línur

Húð­flúr­ar­inn og teikn­ar­inn Auður Ýr Elísa­bet­ar­dóttir not­ast mikið við blóm, pastelliti og ein­faldar línur í verkum sínum, en hún lærði mynd­skreyt­ingu í Academy of Art Uni­versity.

Hvernig verk gerir þú aðal­lega og fyrir hvað?
„Und­an­farin ár hef ég aðal­lega verið í fullri vinnu sem húð­flúr­ari, sem þýðir að ég teikna mikið upp eftir hug­myndum ann­arra. Blóm eru áber­andi í verk­unum mínum, bæði þeim sem ég skapa fyrir aðra og fyrir sjálfa mig.“

Hvaðan færðu inn­blástur?
„Úr nátt­úr­unni, bókum og svo fylgi ég fullt af frá­bærum lista­mönnum á Instagram.“

Hvenær sól­ar­hrings­ins finnst þér best að vinna?
„Mér finnst best að vinna upp úr hádegi, ég elska að taka rólegan morgun með kaffi­bolla og koma mér hægt í gang. Svo vinn ég þar til dóttir mín kemur heim úr skól­anum.“

Hvaða litir heilla þig?
„Ég er hrifin af mjög ein­földum lita­pal­lettum, helst með pastellitum. Ég nota mikið einn til tvo liti í bland við ein­faldar línu­teikn­ingar.“

Ákvaðst þú á ein­hverjum tíma­punkti að verða lista­maður eða gerð­ist það bara „óvart“?
„Ég hef verið ákveðin í að vinna við að teikna síðan ég var um 8 ára.“

Hefur þú alla tíð haft gaman af því að teikna?
„Já, ég á enn skissu­bækur og teikn­ingar frá því ég var mjög ung og það er gaman að sjá hvað maður var að pæla þegar maður var yngri. Ímynd­un­ar­aflið var svo allt öðru­vísi þegar maður var sjö ára og svo líka þegar maður var 15 ára. Ég hef alveg unnið með hug­myndir sem ég hef rek­ist á í þessum gömlu bókum.“

Hvaða lista­menn eru í upp­á­haldi hjá þér?
„Ég er ofboðs­lega hrifin af verkum Alphonse Mucha og Harry Clarke, svo er vinur minn Sölvi Dúnn algjör snill­ingur.“

Hvað er fram undan á næstu miss­erum?
„Ég er í fæð­ing­ar­or­lofi eins og er og verð fram á næsta sumar. Mig langar voða­lega mikið að ná að skapa eitt­hvað fyrir mig á þeim tíma þar sem ég mun ekk­ert vera að flúra og kannski ná að setja upp sýn­ingu. Svo mæti ég fersk til leiks aftur á Íslenzku húð­flúrs­stof­una.“

Instagram / heima­síða: @auduryre / auduryr.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni