Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sýknaður af brotum gegn barni: „Hann hafi haft við hana kynmök um nóttina en hún þóst vera sofandi“

Maður á þrítugsaldri var sýknaður í Héraðs­dómi Norður­lands eystra af ákæru um kynferðis­brot gegn barni, en þetta kemur fram í Frétta­blaðinu.

Samtals voru ákæru­liðirnir þrír; vörðuðu meint brot mannsins gegn sömu stúlkunni. Var maðurinn sýknaður á þeim grund­velli að hann hafi haldið að stúlkan væri eldri; hann játaði að öðru leyti verknað sinn.

Kynntust maðurinn og barnið á stefnumóta­forriti þegar hún var 14 ára og hann 22 ára.

Stúlkan sagði að hún hefði kannast við manninn áður en þau kynntust á áður­nefndu forriti; hann var starfs­maður á stofnun; einhverskonar sumar­búðum ætluðum stúlkum á aldrinum 13 ára til sextán ára, sem hún hafði sótt.

Síðan var það árið 2020 sem þau kynntust á Tinder – í kjölfarið hist og haft samfarir.

Var manninum í ákæru gefið það að sök að hafa í fyrsta lagi klætt stúlkuna úr „fötunum og haft við hana samræði uns hann fékk sáðlát.“

Í annan stað hafi hann í bíl „nuddað kynfæri [stúlkunnar] og sett fingur í leggöng hennar.“

Í þriðja lagi hafi maðurinn, aftur í bíl, „látið [stúlkuna] fróa sér […] látið hana hafa við sig munnmök og fróa sér uns hann fékk sáðlát.“

Kemur fram að maðurinn játaði háttsemina sem lýst var í ákærunni; neitaði hins vegar varðandi aldur brotaþola.

Í dómnum kemur það fram að það liggi ljóst fyrir að stúlkan hafi verið 14 ára og 9 mánaða gömul þegar þau áttu í kynferðis­legum samskiptum.

Er því lýst í dómnum að nokkrum mánuðum síðar hafi hún fengið að gista hjá manninum; hafi hún þá ekki viljað stunda kynlíf með honum „en hann hafi hins vegar haft við hana kynmök um nóttina en hún þóst vera sofandi á meðan.“

Ekki er fjallað meira um það atvik í dómnum sjálfum:

„Ég hafði aldrei vitað að 14 ára unglingar væru svona í samskiptum. Ég kannski svona ranglega ályktaði að stúlka sem væri inni á stefnumóta­forriti og talaði á svona kynferðis­legan hátt, væri svona kannski, komin svolítið lengra í þroska og var ég ekkert að draga það í efa … af því ég, þetta er svona í rauninni, ég hafði aldrei vitað að 14 ára unglingar væru svona í samskiptum.“ sagði maðurinn í skýrslu­töku hjá lögreglunni; hélt því fram að hann hafi haldið að hún væri 15 ára.

Stúlkan vildi meina að áður en þau hafi stundað samfarir í eitt skiptið hafi hún sagt manninum að hún væri 14 ára gömul og sagði manninn alls ekki hafa sýnt nein viðbrögð við því.

Kemur fram að samskipti þeirra á Tinder liggi fyrir í málinu; þar kemur fram að stúlkan hafi sagst vera 15 ára gömul.

Þótti fram­burður mannsins stöðugur sem og trúverðugur, en ósamræmi þótti gæta í framburði stúlkunnar sem þótti draga úr trúverðug­leika hennar.

Taldi dómurinn að maðurinn hafi ekki búið yfir upplýsingum sem gæfu tilefni til að draga í efa að hún hafi verið 15 ára, frekar en 14 ára.

Var maðurinn, eins og áður segir, sýknaður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning