Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ofbeldismaður á stolnum leigubíl eltur uppi – Dularfullt ferðalag skrifborðsstóls á Miklubraut

Lögreglan að störfum.
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Lögreglan leitaði að skrifborða­stól sem hermt var að væri á Miklubraut við Réttar­holtsveg. Stóllinn var horfinn á braut þegar laganna verði bar að og hefur ekki fundist.

Ölvaður og hömlulaus maður í austur­borginni trylltist þegar lögregla greip inn í málin þar sem hann var til vandræða. Lögreglan ætlaði upphaf­lega að koma manninum heim en hann brást illa við og hélt áfram óspektum. Dólgurinn var þá settur í handjárn til að tryggja öryggi þeirra sem voru nærri. Hann var í fram­haldinu læstur inni í fanga­klefa þar til af honum rennur æðið og víman.

Lögreglan handtók útlending sem talið er að dvelji ólöglega í landinu. Hann er grunaður um vörslu fíkniefna. Hann var fangelsaður meðan á rannsókn málsins stendur.

Leigu­bilstjórar áttu í nokkrum erfið­leikum í nótt. Einn óskaði aðstoðar vegna farþega sem neitaði að greiða fyrir umbeðinn akstur. Annar lenti í miklum hremmingum þegar farþegi réðst á hann og rændi leigu­bílstjórann bifreið sinni  og ók á brott. Lögreglan brá skjótt við og náði ofbeldis­manninum sem var hand­tekinn, grunaður um rán, akstur undir áhrifum áfengis auk fleiri brota. Bílræninginn var vistaður í fanga­klefa í þágu rann­sóknar málsins. Leigu­bílstjórinn leitaði á bráða­móttöku vegna áverka sinna.

Þriðji leigu­bílstjórinn var svo í vanda í Breið­holti vegna farþega sem var með óspektir. Lögreglan mætti og kom skikk á málin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Slúður