Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

„Jón gengur um með bensínbrúsa og skvettir úr honum á glæður mannfyrirlitningar og afmennskunar“

Þórunn Ólafsdóttir.
Þórunn Ólafs­dóttir.

Þórunn Ólafs­dóttir ritar beittan pistil í Facebook-síðu sinni; hún er ekki sátt við Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra.

Í áður­nefndri færslu fer Þórunn yfir ákvörðun dómsmála­ráðherra að neita flótta­fólki – sem er barnlaust og heilbrigt – um heilbrigðis­þjónustu; og einnig þá orðræðu sem Þórunn telur Jón hafa notað gegn flóttaólki sem sótt hefur um vernd hér á landi.

Tekið skal fram að Þórunn hefur unnið heilmikið hjálpar­starf fyrir hönd flótta­fólks á Grikk­landi, og á eyjunni Lesbos; er því mjög vel kunnug því starfi að aðstoða við umsækjendur verndar:

„Skaðinn sem Jón Gunnarsson hefur á stuttri ráðherratíð náð að vinna samfélaginu verður ekki bættur í bráð.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

Orðræðan sem hann notar einkennist af mannnfyrirlitningu sem við höfum undan­farin ár aðallega séð í holræsum internetsins – kommenta­kerfunum. Hann teygir sig sífellt lengra í afmennskun fólks á flótta og þykir t.d. eðlilegt að refsa einum jaðar­settasta hópi samfélagsins með því að svipta fólk grundvallar­réttindum eins og þaki yfir höfuðið og aðgangi að heilbrigðis­þjónustu.

Svo eðlilegar þykja honum þessar aðferðir að hann vinnur nú hörðum höndum að því að lögfesta þær. Hann talar um að fólk sé „ólöglegt” og gefur í skyn að samfélaginu stafi af því ógn. Að það eigi ekkert gott skilið og sé fyrir okkur hinum.“

Hún segir að það sé „nákvæmlega ekkert eðlilegt við það að fólki, hvort sem það er barnlaust eða almennt hraust, sé neitað um aðgang að grundvallar­aðstoð eins og heilbrigðis­þjónustu. Er það í alvörunni samfélagið sem við viljum vera?

Á hinn bóginn er svo mikilvægt að muna að dómsmála­ráðherra er ekki einvaldur. Hann situr í umboði allra ríkis­stjórnar­flokkanna og það er á endanum ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur sem er ábyrg fyrir tjóninu sem þessi skaðvaldur hefur unnið samfélaginu okkar.“

Bætir við:

„Orð skipta máli og orðræðan sem Jón Gunnarsson notar, án athugasemda samstarfs­fólks síns, eru skilaboð þess efnis að fólk í ömurlegum aðstæðum sé óvelkomið og jarnvel ógn við samfélagið sem það vill bara fá að vera hluti af.

Fólkið sem um ræðir flúði í flestum tilfellum stríð eða ofsóknir í heima­löndum sínum. Stjórn­völdum er sjaldnast skylt að vísa því úr landi, en velja að gera það því í mörgum tilfellum hafa þau til þess heimild. Það þýðir EKKI að fólkið hafi flúið að tilefnis­lausu, það þýðir einfald­lega að íslensk stjórn­völd hafi tekið pólitíska ákvörðun um að láta önnur ríki bera ábyrgð á að vernda þau.“

Bætir við að lokum:

„Tal um „þetta fólk”, að það eigi ekki rétt á grundvallar­þjónustu, sé ólöglegt, hættulegt eða óæskilegt kyndir duglega undir hatri og jaðrsetningu. Á meðan Jón gengur um með bensín­brúsa og skvettir duglega úr honum á glæður mann­fyrir­litningar og afmennskunar þykist forsætis­ráðherra vera að vinna hörðum höndum gegn fordómum og haturs­orðræðu.

Fyrsta skrefið í þeirri vinnu væri mögulega að slíta samstarfinu við öflugustu fordóma­maskínu landsins?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning