Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Íslendingar sigruðu nígerísk fyrirtæki í héraðsdómi

Háar fjárhæðir voru undir

Borgarnes
Borg­ar­nes Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands er stað­settur þar Mynd: Wikipedia/Chensiyuan

Héraðs­dómur Vestur­lands hefur sýknað Klumbu ehf. af kröfum tveggja níger­ískra félaga sem námu samanlagt tæplega 39 milljónum króna. Málin tengdust viðskiptum með þurrkaðar fisk­afurðir til Nígeríu. Báðir dómar voru kveðnir upp 14. september.

Í öðru málinu krafðist Imma Joe Global Resources Ltd. þess að Klumba greiddi félaginu 10.136.775 krónur auk dráttar­vaxta og máls­kostnaðar. Krafan skiptist í 50 þúsund Bandaríkja­dali vegna gallaðrar vöru­sendingar og 32.500 dali vegna meintrar bónus­greiðslu.

Klumba hafnaði kröfunum og benti meðal annars á að viðskiptin hefðu farið í gegnum íslenska félagið Svalþúfu ehf. Dómurinn taldi gögn málsins styðja að Svalþúfa hefði gegnt umfangs­miklu hlutverki í viðskiptunum og ekki þótti sannað að Imma Joe Global Resources ætti beina kröfu á Klumbu.

Klumba var því sýknuð af öllum kröfum félagsins og Imma Joe Global Resources gert að greiða eina milljón króna í máls­kostnað.

Í hinu málinu krafðist Rosebeth Obiesika & Co. 28.601.360 króna greiðslu frá Klumbu auk vaxta og máls­kostnaðar. Félagið taldi sig eiga 224.306 Bandaríkja­dala kröfu vegna innborgana í tengslum við skreiðar­viðskipti.

Stefnandi hélt því fram að Klumba hefði tekið við greiðslum án þess að afhenda umsamið magn afurða. Dómurinn taldi hins vegar ósannað að Klumba hefði beitt svikum eða blekkingum. Þá næði viðskipta­yfirlit, sem krafan byggðist á, til margra viðskipta­manna og uppruni hluta greiðslnanna væri óljós.

Klumba var sýknuð að svo stöddu í málinu þar sem endanlegt uppgjör viðskipta hefði ekki farið fram. Rosebeth Obiesika & Co. var gert að greiða Klumbu 1,2 milljónir króna í máls­kostnað.

Samanlagt var því Klumba sýknuð af kröfum upp á 38,7 milljónir króna í málunum tveimur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning