Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Eiríkur Elís og Hildur Briem halda áfram að dæma fólk

Eru bæði reynslu­mikil á sínu sviði

Eiríkur Elís Þorláksson
Eiríkur Elís Þor­láks­son Mynd: Háskólinn í Reykjavík

Þorbjörg S. Gunnlaugs­dóttir, dómsmála­ráðherra, hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Eiríkur Elís Þorláksson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 1. september 2026 og að Hildur Briem verði skipuð dómari við Landsrétt frá 5. október 2026.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn­völdum.

Eiríkur Elís Þorláksson lauk embættis­prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2001 og LL.M.- námi við King´s College í London árið 2008. Hann öðlaðist réttindi til málflutnings í héraði árið 2002 og fyrir Hæstarétti árið 2008. Þá lauk hann prófi til að teljast hæfur stjórnar­maður í vátrygginga­félagi 2011.

Að loknu embættis­prófi starfaði Eiríkur Elís um hríð hjá óbyggða­nefnd en hóf árið 2002 störf á lögmanna­stofu þar sem hann starfaði til ársins 2011, þar af sem meðeigandi frá 2004. Frá 2012 hefur hann starfað við lagadeild Háskólans í Reykjavík, fyrst sem lektor en sem dósent frá 2017, auk þess sem hann hefur sinnt lögmanns­störfum samhliða á þeim tíma. Frá mars 2019 til apríl 2024 gegndi hann starfi deildar­forseta laga­deildar Háskólans í Reykjavík auk þess að sinna kennslu við aðra háskóla. Þá var hann settur dómari við Landsrétt samtals í um fjögurra mánaða skeið á árunum 2024 og 2025,  og var vara­dómandi í Endur­upptöku­dómi  2021 - 2026.

Eiríkur Elís hefur jafnframt ritað fræði­bækur í lögfræði og fjölda ritrýndra fræði­greina og setið í stjórnum ýmissa félaga, svo sem Trygginga­miðstöðvarinnar hf. og Stoða hf., í stjórn Bóka­útgáfunnar Codex og gerðar­dóms Viðskipta­ráðs Íslands, þar af sem formaður frá 2022 til 2024. Eiríkur hefur verið settur dómari við Landsrétt frá 5. janúar 2026.

Hildur Briem lauk embættis­prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2000, LL.M.- námi við Háskólann í Lundi árið 2005 og viðbótar­diplómu í opinberri stjórn­sýslu frá Háskóla Íslands árið 2022. Hún öðlaðist réttindi til að flytja mál fyrir héraðs­dómi árið 2001. Að loknu embættis­prófi starfaði hún sem fulltrúi lögreglu­stjórans í Reykjavík á ákæru­sviði embættisins en hóf störf hjá umboðs­manni Alþingis árið 2005 og starfaði þar til ársins 2008 þegar hún varð aðstoðar­maður dómara við Héraðsdóm Austur­lands.

Hún var skipuð í embætti héraðs­dómara og dómstjóra við Héraðsdóm Austur­lands árið 2011 en árið 2018 fluttist hún í Héraðsdóm Reykja­víkur og hefur verið dómari þar síðan fyrir utan að hún var settur landsréttar­dómari í um sex mánaða skeið árið 2021.Hún hefur verið settur vara­dómari í Hæstarétti í fjórum málum og verið dómandi við Endurupptökudóm frá því í febrúar 2025.

Hildur hefur sinnt stunda­kennslu í stjórnsýslu­rétti við lagadeild Háskóla Íslands í um fjögurra ára skeið og setið í áfrýjunar­nefnd ágreinings­mála á kirkju­legum vettvangi frá árinu 2016 og setið í stjórn Dómara­félags Íslands. Þá hefur hún tekið sæti í nokkrum málum hjá kærunefnd útboðs­mála og verið skipuð í nefnd dómstóla­sýslunnar um réttarfar og skilvirkni dómstóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum