Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ágúst er sleginn eftir frumsýningu nýjustu myndar Attenborough

„Hvernig væri þá að Íslendingar hættu að fara í vitlausa átt?.“

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústs­son Þing­mað­ur­inn er sleg­inn. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrum vara­formaður Samfylkingarinnar bendir á sérhagsmuni Íslendinga sem skemmt hafa fyrir nátt­úrunni í heiminum öllum. Þing­maðurinn fyrr­verandi fór á forsýningu nýju heimildar­myndar Sir David Attenborough, Ocean.

Segir Ágúst í Facebook-færslu sem birtist í morgun, að myndin sé sláandi en hún fjalli meðal annars um skaðsemi botn­vörpuveiða, sem Íslendingar stunda enn þann daginn í dag og bendir á að íslensk yfirvöld hafi fyrir 20 árum átt afar stóran þátt í að tillaga um alþjóðlegt bann við slíkum veiðum í úthöfunum var felld á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna.

„Í gær var ég viðstaddur forsýningu Ocean sem skartar David Attenborough. Forseti Íslands hélt þar góða ræðu og brýndi almenning til dáða. Myndin er sláandi en fjallar m.a. um skaðsemi botn­vörpuveiða sem skrapa botninn og eyði­leggja mikið. Botn­vörpuveiðar eru ein versta leiðin til að veiða fisk. Botn­vörpuveiðar eru einnig taldar losa jafnmikið af koltvísýringi og flug­samgöngur.

Íslendingar stunda ennþá umfangsmklar botn­vörpuveiðar. Ég man þegar ég var á Alþingi fyrir næstum 20 árum þegar íslensk stjórn­völd þess tíma áttu mjög stóran þátt í að tillaga um alþjóðlegt bann við botn­vörpuveiðum á úthöfunum var felld á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna. Íslensk stjórn­völd söm við sig með því að fylgja vondum sérhagsmunum, eins og oft áður.“

Að lokum talar Ágúst um stór­hvalaveiðar Íslendinga og skilaboð Attenborough um gríðarlegt mikilvægi þess að vernda höfin. Spyr Ágúst hvort ekki sé kominn tími fyrir Íslendinga að hætta að fara „í vitlausa átt“, þegar snýr að dýra- og náttúru­vernd.

Myndin fjallar einnig um mikilvægi hvala fyrir jafnvægi í vist­kerfinu og jafnvel fyrir lofts­lagið.

„Íslendingar leyfa einir þjóða stór­hvalaveiðar í iðnaðar­stíl. Aftur Ísland í sérhagsmununum.

David Attenborough segir að myndin fjalli um mikil­vægustu skila­boðin sem hann hefur flutt á sínum 99 árum: Með því að bjarga sjónum, björgum við heiminum.

Hvernig væri þá að Íslendingar hættu að fara í vitlausa átt, rétt eins og þeir gera á svo mörgum sviðum dýra- og náttúru­verndar?.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Ríkisútvarpinu bárust 34 umsóknir um starf aðstoðardagskrárstjóra
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni