Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Björn fengið nóg af siðleysi Bjarna: „Þjóðin er orðin þreytt þessum línudansi“

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra Mynd: Trausti Hafsteinsson

Samfélags­rýnirinn úr Grindavík, Björn Birgisson, sem hefur látið hina ýmsu ráðamenn og pólitíkusa fá það óþvegið með harðorðum pistlum á Facebook, hraunar yfir fjármála­ráðherrann okkar, Bjarna Benediktsson, í nýjasta pistli sínum. Hann segir ráðherrann einfald­lega siðlausan.

„Bjarni er svoleiðis. Hann ratar stöðugt í fréttir vegna þess að hann rambar sífellt á mörkum þess sem má og þess sem er bannað með lögum,“ segir Björn sem hefur fengið nóg af Bjarna og skandölunum sem honum iðulega fylgja.

Eins og frægt er orðið hefur Ríkis­endurskoðun gert alvarlega athuga­semdir við söluna á eignar­hlut ríkisins í Íslands­banka á árinu. Fram til þessa hefur Banka­sýslan fengið mestu skammirnar en allt heyrir sölu­ferlið hins vegar undir ráðuneyti Bjarna. Og Björn segir greinilegt að Bjarni hafi undirbúið sig vel undir vörn sína og tönnlist iðulega á sömu setningunni:

„Engin lög brotin! Engin lög brotin! Engin lög brotin! Engin lög brotin! Engin lög brotin! Engin lög brotin! Þetta marg­tyggur Bjarni Benediktsson vegna banka­sölunnar.

Það er líklega nokkuð rétt hjá honum. En sölu­ferlinu voru settar ýmsar reglur, til dæmis rúmaðist faðir hans ekki innan þeirra, en það var ekki skrifað í nein lög. Sumt er löglegt, en algjör­lega siðlaust. Bjarni er svoleiðis. Hann ratar stöðugt í fréttir vegna þess að hann rambar sífellt á mörkum þess sem má og þess sem er bannað með lögum. Hann hefur til dæmis ekki sagt eitt styggðar­yrði um mútumál Samherja því þeir eru hans menn og hugsa á sömu nótum.

Hann var augljós­lega vel undir­búinn þegar skýrslan loksins kom fyrir sjónir almennings.

Hann vissi um allar reglurnar sem höfðu verið sveigðar og beygðar til að „rétta fólkið“ eignaðist hlut í bankanum.

Hann vissi að strangt til tekið voru engin lög beinlínis brotin.

Þar liggur vörnin hans.

Engin lög brotin!

Engin lög brotin!

Engin lög brotin!

Þetta marg­tyggur hann við hvert tækifæri sem gefst. Þjóðin er orðin þreytt þessum línudansi Bjarna Benedikts­sonar á landa­mærum laga og siðleysis. Meira að segja er hátt í helmingur hans flokks­manna orðinn þreyttur á þessu háttar­lagi. Tími hans er liðinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning