Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Dansarinn á Goldfinger gerðist bóndi á Austurlandi: „Hér er engin kona neydd í dans“

Elísa sátt í sveitinni
Elísa sátt í sveit­inni Mynd: Aðsend

Elísa Butt Davíðs­dóttir er um margt áhugaverð kona. Hún ólst upp á Akranesi en dreymdi alltaf um að verða bóndi. Lífið leiddi hana ekki strax í sveitina en 18 ára byrjaði hún sem nektar­dansmær á skemmtistaðnum Vegas. Elísa, sem er hálfur Breti, sem útskýrir ættar­nafnið, ræðir hér um ástamálin, nektar­dansinn, þörfina fyrir tjáningu, fordóma samfélagsins og nýja sveita­lífið fyrir austan.

„Fann mitt element í nektardansinum“

Þegar Elísa var 15 ára ákváðu foreldrar hennar að flytja til Kanada, en það hugnaðist henni ekki. Hún flutti því að heiman. „Það hefur alltaf verið mikil ævintýraþrá í mér,“ segir Elísa. Hún kynntist strák og flutti með honum austur á Reyðar­fjörð þar sem hún kláraði grunn­skólann. Eftir það fluttu þau á Suðurnesin en þar lauk sambandinu og Elísa flutti til borgarinnar, 18 ára að aldri.

„Ég hætti með honum og flutti til Reykja­víkur. Þar byrjaði ég að vinna á Vegas, sem barþjónn.“ Elísa segir að hún hafi alltaf haft ákveðna ævintýraþrá í sér og laðast að jaðar­hópum, hangið mikið með rokkurum og fólki sem þótti öðruvísi.

„Ég fylgdist alltaf með af hliðar­línunni, var ekkert að drekka á þessum árum eða í dópi, en fannst spennandi að vera innan um fólk sem var öðruvísi og með annars konar orku. Og þetta fann ég þegar ég byrjaði að vinna á barnum á nektar­dansstaðnum Vegas.“

„Hér er engin kona neydd í dans“

Aðspurð hvernig það æxlaðist að Elísa fór af barnum og á súluna segist hún hafa flutt inn til kvennanna sem voru að dansa á Vegas.

„Ég hafði alltaf verið mjög feimin og inni í mér, með lítið sjálfs­álit og alltaf í felum. En svo var það eitt kvöldið að ég fékk mér eitt rauðvíns­glas eftir lokun. Þá ákvað ég að prófa að hoppa upp á svið og dansa, því ég hafði alltaf haft gaman af því. Það var ekki aftur snúið. Ég fann mitt element, tónlistin, orkan og nátt­úrlega athyglin líka, jákvæð athygli. Þarna fann ég minn hóp og svona, fann að ég tilheyrði.“

Elísa á nekt­ar­dansárum sínum
Elísa á góðri stundu

Nú hafa strippstaðir það orð á sér að þar þrífist mansal, vændi og almenn ill meðferð á konum, en það er ekki reynsla Elísu.

„Það var alltaf farið vel með okkur stelpurnar, við aldrei neyddar í neitt og okkur alltaf sýnd virðing. Þarna var fjöldi flottra kvenna sem sumar áttu fyrirtæki til dæmis, aldrei nein neyð í gangi. Þetta voru til dæmis stelpur frá Englandi sem ráku fyrirtæki og verslanir úti og nutu bara lífsins. Og það gerðum við líka, íslensku stelpurnar.“

Elísa segir að þær hafi stundum farið að dansa í Noregi og Englandi og að það hafi verið töluvert öðruvísi en hér á Íslandi.

„Það var meiri klassi úti, þar vissu karlarnir sem komu á staðina að það væri bara almenn kurteisi að bjóða í glas og slíkt, en heima á Íslandi var algengara að karlmenn byðu okkur heim með sér, en í raun var meiri séns fyrir þá að pikka stelpur upp á venju­legum börum en að fara með okkur dönsurunum heim.“

Elísa rifjar upp heimsókn hóps kvenna sem höfðu áhyggjur af dönsurunum.

„Einhvern tímann var svona rauðsokku­hópur að mótmæla fyrir utan Goldfinger og var að stöðva allar konur sem voru að fara þar inn til að dansa. Þær buðu dönsurunum aðstoð við að losna þaðan. Þær töluðu ensku og héldu að við værum allar útlenskar en við svöruðum bara á íslensku og sögðum þeim að hér væri engin kona neydd í dans eða nokkuð.“ Elísa heldur áfram: „Þetta voru allt sterkar stelpur sem ég var að dansa með, sumar hverjar í námi og, eins og ég sagði, með fyrirtæki og fleira.“

Á þessum árum var Elísa dugleg að koma sér á framfæri, hún birtist á síðum tíma­ritsins Bleikt og blátt, var í Séð og heyrt og keppti í nektardans­keppni í Þórskaffi.

„Ég fór „all in“ á þessum tíma, en ég passaði alveg upp á mig og stundaði námið mitt,“ segir Elísa, sem er menntaður sjúkra­liði og einka­þjálfari.

„Dansinn var vald­eflandi, ég fann sjálfa mig og þetta var alltaf mín tjáning. Ég tók aldrei þátt í neinu bulli, ég var ekkert þar,“ segir Elísa. „Þetta snerist ekki alltaf um peninginn heldur líka að vera með sínu fólki og tilheyra hópi.“

Elísa Butt Dav­íðs­dóttir

Erfitt að passa í normið

Elísa var í dansinum í 12 ár og á þeim tíma eignaðist hún barn með manni sem hún var í sambandi með í um sjö ár. Hún sá fljótt að hún gæti ekki verið í því sambandi lengur. Síðan kynntist hún dyraverði á staðnum þar sem hún dansaði og felldu þau hugi saman. Fljótlega kom annað barn og svo varð hún ólétt aðeins hálfu ári eftir fæðingu annars barns síns.

„Þetta var alveg „non stop“,“ segir Elísa og hlær. „Það var alltaf ofboðsleg tenging hjá okkur.“ Hún hætti í dansinum og hóf störf sem sjúkra­liði. Þegar börnin voru orðin aðeins eldri fór Elísa að vinna í sjálfri sér. „Þá fór ég í svolitla sjálfs­vinnu, fór í dáleiðslu og til sálfræðings. Ég losnaði aldrei við löngunina til að dansa og tjá mig og íhugaði hver ég væri. Af hverju hef ég þessa þörf fyrir jaðarhópa og þessa spennu? Ég var orðin svo vön að klæða mig í dansfötin á kvöldin og koma mér í gírinn fyrir dansinn, en svo allt í einu var það bara búið. Hvernig átti ég þá að vera og hvernig átti ég þá að tjá mig? Hvar er pláss fyrir mig í þessu öllu? Nú var ég gift, komin með þrjú börn og hugsaði: Nú þarftu bara að fara að haga þér.“

Elísa segir að samfélagið bæli fólk niður að miklu leyti. „Þú mátt ekki vera svona og þú mátt ekki vera of mikið, ekki vera að dansa og ekki vera svona sexí. Nú ertu orðin mamma sem á trúan og traustan mann og átt bara að haga þér. Þú setur sjálfan þig algjör­lega til hliðar þegar þú ert orðinn foreldri. Maður þorir ekki að fara út í kjól, því þá gæti maður verið of sexí.“

Elísa segist alltaf hafa haft mikinn metnað fyrir foreldra­hlutverkinu og hjóna­bandinu, en í leiðinni týndi hún svolítið sjálfri sér.

„Svo var dans­stöðunum lokað og þá fann maður líka meira fyrir samfélags­legu pressunni. Maður átti ekki að vera öðruvísi og var alltaf að reyna að passa inn í eitthvert norm. Ég var alltaf að reyna að vera hin fullkomna mamma og hinn fullkomni sjúkra­liði, að gera aldrei mistök.“

Mamman með fjólu­bláa hárið

„Ekki bara einhver drusla eða hóra!“

„Það skipti mig alltaf miklu máli þegar ég var að dansa að ég væri líka virðingar­verð manneskja. Það var oft erfitt að vera með þennan strippara­stimpil á sér. Mig langaði oft að standa bara upp og segja: já, ég er strippari, en ég er miklu merkilegri en það, ég er ekki bara einhver drusla eða hóra!“ Þegar hér er komið sögu fer Elísa að tala um nýjasta æði ungra Íslendinga; Only Fans. „Það má alveg setja þetta í samhengi við það sem er að gerast núna, Only Fans. Mér finnst það ótrúlega flott að konur leyfi sér að vera eins og þær eru.“

Aðspurð hvort hún gæti hugsað sér að vera með Only Fans-síðu segist Elísa ekki geta hugsað sér það, enda hafi hennar tjáningar­máti alltaf verið í dansinum en ekki hún ein fyrir framan mynda­tökuvél heima hjá sér. „En mér finnst frábært að einhverjir vilji vera þar. En ég held að þetta sé að fara svolítið öfugt ofan í landann, því þetta er svo nálægt okkur. Þetta geta verið nágranni þinn, frænka, frændi, þú skilur, þetta er miklu opnara en til dæmis lokaður nektar­dansstaður. Þarna sjáum við aftur sömu viðhorfin; þú átt ekki að vera svona, ekki vera svona sexí og átt ekki að þurfa að tala um kynlíf eða tjá þig um þessa hluti,“ segir Elísa, og þetta er henni greini­lega hjartans mál. „Þess vegna finnst mér ótrúlega flott að sjá konur í þessu vald­eflandi hlutverki, að standa upp og bara: hæ, ég ætla að vera svona, ég ætla að vera svona sexí og ég ætla að sýna öllum heiminum hvað ég er æðisleg.“

Elísa Butt

Þurfti að komast í tengingu við náttúruna

Þau hjónin sáu bóndabæ austur á Héraði auglýstan til sölu og ákváðu að slá til og keyptu Hrafna­björg og Litlabjarg. Þar hafa þau komið sér upp myndar­legu búi og eru með geitur, svín, nokkrar kindur og nautaeldi. Að auki reka þau gistiheimili og verslunina Litlabjarg þar sem Elísa selur prjóna­vörur sem hún prjónar sjálf. Að hennar sögn hefur hún selt peysur um allan heim og því sé nóg að gera á bænum. „Þetta er það sem ég fann út þegar ég var að vinna í sjálfri mér, að ég þurfti að komast í tengingu við náttúruna; vera í nátt­úrunni og í friði. En það gekk eiginlega of langt hjá mér, ég lokaði mig of mikið af,“ segir Elísa. „Þarna var ég komin í þennan kassa, kominn með börnin, flutt í sveitina og þetta var bara fínt, æðislegt að vera í nátt­úrunni og í kyrrðinni. Samt var alltaf spurningin; er þetta ég? Er ég bara mamman sem býr úti í sveit og situr í sófanum og prjónar allan daginn?“

Elísa í kyrrð­inni

Lífið er ótrúlegt ferðalag

Elísa segir að lífið sé ótrúlegt ferðalag.

„Ég hef svolítið leyft lífinu að leiða mig áfram,“ segir Elísa en segir aðspurð að hún telji að lífið eigi ekki eftir að leiða hana á enn einn nýjan stað. „Nei, ég held að ég sé kominn á þann stað sem ég vil vera á. Núna er ég að hefja ferðalag, að finna orkuna aftur og það er að þakka þessari vitundar­vakningu sem er í gangi núna. Ég er orðin mjög þreytt á að fela mig. Ég er svona manneskja sem á fjölda vina. Ég elska að vera innan um fólk og heimili mitt hefur alltaf verið opið heimili og það er kannski ekki normið. Það hefur verið sérlega áhugavert að fylgjast með smáborgara­hættinum hjá fólki, því þú ert svona öðruvísi og ferð á móti straumnum. Ég er mamman með fjólubláa hárið og fullt hús af fólki og þá byrja auðvitað kjafta­sögurnar. Það eru alveg átök að spyrna gegn þessu.“ Nú segist Elísa vera að vinna í því að kynnast nýju fólki, fólki sem er á sömu bylgjulengd og hún. „Fólki sem skilur mann og hjálpar manni og eflir í að vera eins og maður er. Þú veist, af hverju má Sigga Dögg kynlífs­fræðingur ekki birta mynd af sér á rassinum og af hverju er orkan okkar svona mikið tabú?“ spyr Elísa og er nokkuð mikið niðri fyrir. „Ég held að það sé svolítið erfitt fyrir margar konur að fá að vera eins og þær eru, vera þær sjálfar, þær þurfa að berjast gegn viðhorfi vina, fjöl­skyldu og samfélagsins.“

Elísa sátt í sveit­inni

Að lokum segist hún vera í smá rökræðum við sjálfa sig: „Auðvitað er maður líka í „conflicti“ við sjálfan sig, en ég er bara kona sem finnst gaman að fara í kjóla og hælaskó og dansa. Nú er ég að reyna að finna það aftur hjá sjálfri mér að ég má alveg dansa og leyfa orkunni að flæða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning