Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Stóra súpumálið á Litla-Hrauni: „Alltaf einhverjir menn tilbúnir að koma leiðindum af stað“

Fangelsið Litla-Hraun
Fang­elsið Litla-Hraun

Fangar á Litla-Hraun fengu óvænta ábót með matnum árið 2004.

Það er ekki á hverjum degi sem greint er frá mat í íslenskum fangelsum en fangar á Litla-Hrauni fengu súpu með gleraugum árið 2004. Líklega var um hrekk að ræða.

„Maður hrekkur náttúru­lega við þegar svona gerist,“ sagði Páll Ingimarsson, kokkur á Litla-Hrauni, árið 2004 í viðtali við DV. Þá var greint því að fangar á gangi tvö hefðu fundið gleraugu í súpupotti sem Páll eldaði. „Ég veit ekki hversu alvarlegt mál þetta er en ég hef fært sannanir fyrir því að þetta eru ekki mín gleraugu. Það getur að sjálfsögðu gerst að gleraugun renni úr brjóst­vasanum hjá manni þegar verið er að hella súpunni í daliana. Ég kannaði þetta mál þegar það kom upp og gleraugun mín voru hérna inni í hillu.“ 

„Auðvitað er þetta leiðinlegt mál. Eflaust einhvers konar mistök. Það er vottað að ég er með mín gleraugu,“ sagði kokkurinn en hann hafði sjálfur lítinn húmor fyrir þessum ásökunum. „Ég hellti súpunni í sjálfur og það er alveg á hreinu að gleraugun voru ekki í dallinum áður en súpan fór í þá.“ 

„Þetta er ágætis­starf, vinnu­tíminn er góður. Yfirleitt er þetta eins og hver annar vinnu­staður. Þetta er bara einhver vandræða­gangur. Það eru alltaf einhverjir menn tilbúnir að koma leiðindum af stað, sumir eru bara þannig gerðir,“ sagði hann um starfið en hann hafði unnið til margra ára sem kokkur á Hrauninu.

„Það eina sem við vitum er að gleraugun eru ekki komin frá starfs­fólki eldhússins,“ sagði Kristján Stef­ánsson, fangelsis­stjóri á Litla-Hrauni, og reiknaði með að um hrekk væri að ræða. 

„Við munum ekki gera meira í þessu máli,“ sagði Kristján að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni