Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Brynjar hnýtir í Hallgrím: „Stífbónaður í flottum fötum með rándýr gleraugu“

Hallgrímur Helgason rithöfundur og listamaður.
Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og lista­maður.

„Skemmtun er hug­tak sem getur vaf­ist fyrir okkur öllum. Í sól­ar­landa­ferðum í gamla daga var oft boðið um á dags­ferðir um nágrennið sem menn greiddu fyrir eft­irá. Virðuleg mið­aldra kona harð­neit­aði að greiða fyrir eina slíka ferð á þeim grund­velli að þarna hefði verið aug­lýst skemmti­ferð sem reynd­ist síðan ekk­ert skemmti­leg. Þessi saga kom upp í hug­ann þegar ég horfði á Vikuna með ein­hverjum Gísla á RÚV síð­asta föstu­dag.“ Þannig hefst færsla Brynjars Níels­sonar, spéfugli og fram­bjóð­anda Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar, sem hann birti á Facebook í hádeg­inu en þar lét Hall­grímur Helgason gamm­inn geisa og þóttu margir hann gefa Bjarna Bene­dikts­syni og öðrum hægri­mönnum kjafts­högg. Vinstri menn hafa fagnað Hall­grími í hástert eftir þátt­inn en hægri­menn eins og Brynjar hafa verið minna hrifnir. Eins og sést í færsl­unni. Hún heldur áfram:

„Mér skilst að þessi vika með Gísla sé skemmti­þáttur, að minnsta kosti aug­lýstur sem slíkur, þar sem einkum frægt og sjálf­hverft fólk kemur til að upp­hefja sjálfan og níða aðra niður. Skilst einnig að þátta­stjórn­and­inn gefi ekk­ert eftir í þeim efnum á sinn ein­stak­lega fyndna hátt. Öfugt við skemmti­ferð­irnar í sól­ar­löndum greiðir maður fyr­ir­fram fyrir skemmt­un­ina á RÚV.

Í þessum þætti birt­ist gam­all skóla­fé­lagi úr MH, sem síðar varð þekktur skatta­kóngur árum saman, stíf­bón­aður í flottum fötum með rán­dýr gler­augu. Hann hefur greini­lega ekki áttað sig á því að reiðir menn, sem hlægja mest sjálfir að eigin fyndni, eiga ekk­ert erindi í skemmti­þátt. Þeir eiga meira erindi í umræðu­þátt á Sam­stöð­unni um órétt­læti heims­ins og mann­vonsku ann­arra.“

Að lokum segir Brynjar að honum þyki Silfrið á RÚV mun betri skemmti­þáttur.

„Sjálfum finnst mér Silfrið miklu meiri skemmti­þáttur. Í gær urðu áhorf­endur vitni að nýju meti í lurðu­skap og lít­illi sjálfs­virð­ingu. Svo fannst mér merki­legt að hægt væri að finna stjórn­mála­mann sem er minna glað­legur en ég. Eins og lesa má hefur vel tek­ist til hjá mér á jákvæðni­nám­skeið­inu hjá Óttari Guð­munds­syni, geð­lækni. Mættu fleiri panta sér tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið