Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Leikmaður West Ham játar dýraníð

Mynd/Getty
Mynd/Getty

Kurt Zouma, varnar­maður í enska knattspyrnu­liðinu West Ham, játaði sök vegna dýraníðs í tveimur ákæru­liðum fyrir rétti í gær. Sky sports greinir frá þessu.

Myndbönd af Zouma fóru í dreifingu þar sem hann sést sparka í og kasta kettinum sínum yfir eldhúsið heima hjá sér. Þá sýndu mynd­böndin hann einnig slá köttinn í höfuðið og kasta skóm í hann. „Ég sver að ég mun drepa hann,“ heyrist Zouma segja á upptökunum.

Mynd­böndin voru tekin upp af yngri bróður Zouma og birt á samfélags­miðlinum Snapchat.

Eftir að mynd­böndin fóru í dreifingu var Zouma ákærður fyrir dýraníð í þremur ákæru­liðum. Hann játaði í gær sök í tveimur þeirra. Bróðir hans var einnig ákærður en kona sem hann hafði verið í samskiptum við vakti uppruna­lega athygli á mynd­böndunum. Hún er sögð hafa ætlað á stefnumót með bróðurnum en hætt við eftir að hann birti mynd­bandið. „Mér finnst ekki í lagi að slá kött, ekki hafa fyrir því að koma hingað í dag,“ segir í skila­boðum sem hún sendi honum. Bróðirinn játaði sök fyrir að hafa aðstoðað Zouma við að brjóta lög.

Saksóknari í málinu benti á að eftir að mynd­böndin komust í dreifingu hafi það færst í aukana að fólk væri að taka upp myndbönd af sér slá ketti og birta á samfélags­miðlum.

Zouma hefur samþykkt að kettirnir hans tveir, sem eru af tegundinni Bengal, verði komið fyrir á nýju heimili.

West Ham sektaði Zouma vegna málsins og gáfu fé til níu dýra­velferðar­samtaka í Bretlandi og öðrum löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall