Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Brynjar ætlar að hætta að ljúga: „Það ískrar í Soffíu af tilhlökkun“

Brynjar Níelsson. Mynd/Skjáskot
Brynjar Níelsson. Mynd/Skjáskot

„Ég hef haft dágóðan tíma í haust til að hugsa um lífið og til­ver­una og fram­tíð­ina ekki síst. Nið­ur­staðan er sú, eftir mikla yfir­legu, að tími sé kom­inn til breyt­inga. Ætla byrja á að hætta að segja ósatt öllum stundum. Það er nefni­lega ekki þjóð­saga að nefið stækki með hverri lygi. Tel líkur á að það tak­ist eftir brott­hvarf úr stjórn­málum.“ Þannig hefst Facebook-færsla Brynjars Níels­sonar sem hljómar eins og snemm­búin ára­móta­heit.

Segist Brynjar enn­fremur ætla að hætta allri nei­kvæðni og leið­indum sem hann segir hafa „hel­tekið“ hann síð­asta ára­tug­inn.

„Stefni á að losa mig undan nei­kvæðni, þusi og almennum leið­indum, sem hefur hel­tekið mig síð­asta ára­tug­inn. Mér hefur verið bent á að lesa Biblíuna til að skynja sam­kennd, mannúð og mik­il­vægi kær­leik­ans og fyr­ir­gefn­ing­ar­innar. Það dugi skammt að leita til rán­dýrra sér­fræð­inga í þeim efnum. Það er trú margra að undir yfir­borð­inu sé hægt að finna ljúf­ling en það þurfi kannski að kafa djúpt með súr­efn­iskút til að finna hann.“

Í næstu orðum sínum seg­ist Brynjar ætla að hætta öllu ein­elti á sam­fé­lags­miðl­unum en notar á sama tíma tæki­færi á að skjóta á konu sem hann hefur oft skotið á í gegnum tíð­ina:

„Ég hyggst láta af öllu ein­elti á sam­fé­lags­miðl­unum. Jafnvel láta þá miðla alveg eiga sig. Kannski ger­ist það sjálf­krafa eftir að Píratar duttu af þingi. Ein­elt­istil­burðir mínir hafa nefni­lega mest farið í taug­arnar á Soffíu fyrir utan klæða­burð minn og útlit. Það yrði mjög kostn­að­ar­samt fyrir mig að bæta klæða­burð og útlit og senni­lega þyfti lands­söfnun undir stjórn Semu Erlu til að ná fjár­munum sem til þarf og hugs­an­lega aðkomu lækna­vís­ind­anna.“

Brynjar segir að mik­il­væg­asta breyt­ingin sem hann verður að fara í sé lík­am­leg heilsa hans.

„Mik­il­væg­ast fyrir mig er senni­lega átak í að bæta lík­am­lega heilsu mína. Ég hef illa tollað á lík­ams­rækt­ar­stöðvum. Er of við­kvæmur fyrir óvæntum hljóðum þar. Upplifi mig alltaf sem eitt­hvert aðskota­dýr sem allir glápa á og glotta. Mér skilst að ástæðan sé sú að óþekkt sé að menn mæti þar í hálfrar aldar gömlum íþrótta­fötum.“Að lokum segir hann að það hlakki í eig­in­kon­unni vegna kom­andi breyt­inga.

„Ef þetta gengur eftir kemur nýr og betri maður til leiks á nýju ári. Það ískrar í Soffíu af til­hlökkun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið