Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Britney ræðir hitamál við umdeildan sjónvarpsmann

Britney Spears kallaði systur sína tík
Britney Spears kall­aði systur sína tík Mynd: PA / AP

Heims­fræga söngkonan Britney Spears er sögð ætla í viðtal hjá hinum umdeilda sjónvarps­manni Piers Morgan.
Piers hætti í þættinum „Good Morning Britain“ snemma á síðasta ári í kjölfar umdeildra athugasemda um Meghan Markle, eiginkonu Harry breta­prins en virðist nú skipuleggja risastóra endurkomu á skjáinn með aðstoð fjölmiðlamógulsins Roberts Murdoch. Talið er að viðtalið við söng­konuna birtist á nýrri sjónvarpsstöð Murdochs sem heitir TalkTV og fer í loftið á næstu mánuðum.

Ekki er langt síðan Britney hafði betur í dómsmáli gegn föður sínum, Jamie Spears, en lögfræði­teymi söng­konunnar segir föður hennar meðal annars hafa dregið að sér rúmar þrjátíu og sex milljónir dollara eða fjóran og hálfan milljarð íslenskra króna á meðan sá síðarnefndi sá um fjármál hennar.

Britney var svipt lögræði árið 2008 og var því bókstaf­lega undir stjórn föður síns í 14 ár. Þá var faðir hennar meðal annars gagn­rýndur fyrir það að hafa látið Britney syngja á tónleikum á sama tíma og hann hélt því fram að söngkonan hafi ekki verið metin andlega hæf til þess að ráða sínum eigin málum.

Piers Morgan er einn af þekktustu sjónvarps­mönnum í heimi og hefur starfað bæði hjá breskum og bandarískum sjónvarps­stöðum. Hann er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum, spyr beittra og oftar en ekki óþægilegra spurninga í viðtölum sem oftar en ekki hafa ratað í fjölmiðla út um allan heim.

Ef rétt reynist má ætla að viðtalið við Britney verði ekkert síðra en önnur viðtöl sem Piers Morgan hefur tekið og má því búast við eldfimu viðtali sem kemur ekki til með að fara framhjá heims­byggðinni. Eins og áður segir er búist við því að sjónvarps­stöðin fari í gang á næstu mánuðum og er talað um að hið meinta viðtal verði tekið upp og birt í lok sumars eða í byrjun hausts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt