Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Brian Pilkinton fékk Covid í afmælisgjöf: „Þetta er búið að vera ansi slæmt“

Brian Pilkington
Brian Pilk­ington Mynd: flyovericeland.com

Brian Pilkington er nafn sem flestir ef ekki allir Íslendingar þekkja. Brian á afmæli í dag og því ber að fagna. Eru nú liðin 72 ár frá fæðingu hans.

Brian er ensk-íslenskur mynd­listamaður sem er fæddur og uppalinn í Liverpool, Englandi. Er hann með BA-gráðu í teikningum frá Háskólanum í Leicester. Árið 1974 flutti Brian til Íslands eftir að hafa heillast af landi og þjóð á ferðalagi og hóf störf í auglýsinga­bransanum. Árið 1981 kom út bók Guðrúnar Helga­dóttur, Ástar­sögur úr fjöllunum með mynd­skreytingum Brians Pilkington og þá var ekki aftur snúið. Í gegnum áratugina hefur Brian mynd­skreytt fjöldan allan af bókum sem byggja á íslenskum þjóðsögum og þá hefur hann aukreitis samið þó nokkrar vinsælar barna­bækur í gegnum tíðina. Brian hefur hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir mynd­skreytingar sínar en 2003 hlaut hann Dimmalimm –  mynd­skreytinga­verðlaunin fyrir bókina Mána­steinar í vasanum.

Jóla­svein­arnir hans Brian Pilk­ington eru stór­kost­legir

Mannlíf hafði samband við Brian og spurði hann hvort og þá hvernig hann hyggðist halda upp á daginn.

„Ég held upp á hann með Covid. Ég kom frá Frakk­landi fyrir um viku síðan og þetta er búið að vera ansi slæmt en ég er aðeins að komast yfir þetta.“ Aðspurður hvort hann fengi ekki einu sinni afmælis­köku sagði Brian að kona hans ætlaði að baka handa honum köku seinna í dag.

En hvað er framundan hjá Brian?
„Ég er að teikna allskonar og ég er með barnabók sem kemur kannski ekki út á þessu ári en þá á því næsta. Svo er ég með sýningu í september þar sem ég sýni abstrakt-málverk.“

Mannlíf óskar Brian Pilkington innilega til hamingju með daginn og vonar að hann hristi Covid af sér sem fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Húsið var reist árið 1922
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Maðurinn er grunaður um kynferðisbrot

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið