EFTA-dómstóllinn hefur skilað ráðgefandi áliti þess efnis að blóðmerahald falli undir starfsemi í vísindaskyni en teljist ekki til hefðbundinnar landbúnaðarstarfsemi. Niðurstaðan tengist dómsmáli sem fyrirtækið Ísteka ehf. höfðaði gegn Matvælastofnun (MAST) á síðasta ári. Ísteka, sem stendur að blóðmerahaldi hér á landi, hélt því fram að starfsemin væri hliðargrein í landbúnaði en ekki vísindastarfsemi eins og MAST hafði skilgreint hana.
Það var Héraðsdómur Suðurlands sem leitaði álits EFTA-dómstólsins á túlkun reglugerðarinnar sem gildir um starfsemina. Reglugerðin byggir á Evróputilskipun um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Samkvæmt henni eru gerðar ríkar kröfur til verndar og velferðar dýra, þar á meðal að óheimilt sé að nota dýr í vísindaskyni ef aðrar leiðir eða staðgöngulyf eru tiltæk sem skila sambærilegri niðurstöðu.
Í blóðmerahaldi er PMSG-hormónið unnið úr blóði fylfullra hryssa til að framleiða frjósemislyf fyrir búfé. Fyrir liggur að í búfjárrækt eru til staðgöngulyf og aðferðir sem geta komið í stað hormónsins. Þrátt fyrir þetta veitti MAST fyrirtækinu Ísteka skilyrt starfsleyfi til tveggja ára slíkt vor.
Dýraverndarsamband Íslands hefur lýst því yfir að leyfisveitingin sé óviðunandi og telur niðurstöðu EFTA-dómstólsins marka mikilvægan áfanga fyrir réttarstöðu hryssa sem notaðar eru til blóðtöku. Málið heldur nú áfram fyrir Héraðsdómi Suðurlands þar sem endanlegur dómur mun falla.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir