Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sigmar segir: „Klúður stjórnvalda kemur í veg fyrir að meira verði selt í bankanum í bráð“

Sigmar Guðmundsson.
Sigmar Guð­munds­son.

Alþingis­maðurinn Sigmar Guðmundsson segir að það sé ljóst á skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um Íslands­banka­söluna, sem birt hefur verið á vef stofnunarinnar, „að þessari ríkis­stjórn eru ákaflega mislagðar hendur við að skipuleggja stór verkefni.“

Bætir við:

„Stærstu tíðindin eru auðvitað þau að þetta klúður stjórn­valda kemur að öllum líkindum í veg fyrir að meira verði selt í bankanum í bráð. Þar liggja miklir fjármunir, tugir milljarða, sem til stóð að losa um til hagsbóta fyrir ríkissjóð. Lestur skýrslunnar leiðir okkur klárlega til þeirrar niður­stöðu að óhjákvæmilegt er að rann­sóknarnefnd alþingis verði skipuð sem fyrst, því það kemur skýrt fram í skýrslunni að Ríkis­endurskoðun tók ekki til athugunar fjölmarga þætti sem brýnt er að skoða.“

Sigmar bendir á að þar megi „nefna að ákvarðana­takan í ráðherra­nefndinni er ekki skoðuð og reyndar er öll athugun á pólitískri ábyrgð víðs fjarri, líkt og bent var á að yrði óhjá­kvæmilega niður­staðan hjá Ríkis­endurskoðun, enda rannsóknar­hlutverk hennar mun afmarkaðra en hjá sérstakri rann­sóknarnefnd.

Bara sú staðreynd, að einn ráðherra í ráðherra­nefndinni sem fór með málið, varaði við því að fara þessa leið og sá fyrir klúðrið, kallar á nánari skoðun en nú liggur fyrir.

Bráða­niður­lagningu banka­sýslunnar í eftir­leiknum þarf líka auðvitað að rannsaka. Þá bendir Ríkis­endurskoðun á að ekki er tekin afstaða til þess hvort þetta hafi verið rétti tíminn til að selja eða til þeirra sem fengu að kaupa. Eða hvort rétta fyrir­komulagið hafi verið valið.“

Sigmar telur ýmislegt í skýrslunni vekja athygli:

„Þótt það komi skýrt fram í skýrslunni að fleira þurfi að rannsaka og skoða, er ansi margt í henni sem vekur mikla athygli. Til að mynda efasemdir Ríkis­endur­skoðunar um að rétt hafi verið og nauðsynlegt að gefa þann afslátt af kaup­verðinu sem varð raunin. Verðið hafi verið of lágt og of mikið miðast við erlenda fjárfesta. Jafnræði hafi ekki verið tryggt nægjanlega vel á milli fjárfesta, upplýsinga­gjöf hafi ekki verið í lagi, ekki gætt að megin­reglum um gagnsæi og hlutlægni.

Ríkis­endurskoðun nefnir einnig orðspors­áhættuna sem var ekki tekið tillit til. Þetta síðastnefnda skiptir gríðar­legu máli í svona ferli, ekki síst þegar kemur að áfram­haldi sölu.“

Sigmar segir einfald­lega að „traustið er fokið út um gluggann; skýrslan er mikill áfellis­dómur yfir stóru verkefni sem er á ábyrgð ríkis­stjórnarinnar. Ráðherrar hafa því miður lítið vilja kannast við þá ábyrgð og velt henni alfarið yfir á banka­sýsluna. Það er ekki stór­mannlegt því það vita allir sem vilja vita að ef salan hefði gengið vel þá væru sömu ráðherrar nú að baða sig í ljóma vel heppnaðrar einka­væðingar.

Líka ráðherrar VG sem almennt eru nú ekki mikið fyrir að selja ríkis­eigur. Því miður er líka niður­staðan í þessu öllu sú að hægri flokknum í stjórnar­samstarfinu hefur tekist að slá öll áform um frekari sölu út af borðinu um langa hríð, án þess að hafa ætlað sér það. Það er talsvert afrek í sjálfu sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning