Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Sjúklingur braut kynferðislega á ölvaðri stúlku á Landspítalanum

Maðurinn neitaði sök fyrir dómi

Landspítalinn í Fossvogi
Land­spít­al­inn í Fossvogi Mynd: Víkingur

Arturas Leimontas hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir kynferðis­lega áreitni gagnvart unglings­stúlku á bráða­móttöku Land­spítalans í Fossvogi sumarið 2024.

Samkvæmt dóminum átti atvikið sér stað að kvöldi 15. júní 2024 þegar stúlkan hafði verið flutt á bráða­móttökuna í mjög ölvuðu og meðvitundar­skertu ástandi. Leimontas, sem einnig var sjúklingur á bráða­móttökunni og undir áhrifum áfengis, veitti stúlkunni ítrekaða athygli þar sem hún lá í sjúkra­rúmi á gangi deildarinnar.

Vitni, meðal annars hjúkrunar­fræðingar, sjúkra­liðar og öryggis­vörður, lýstu því fyrir dómi að Leimontas hefði kysst stúlkuna á munninn og sett fingur í munn hennar. Einnig kom fram að starfs­fólk hefði brugðist við háttseminni með því að færa hann frá stúlkunni og kalla til lögreglu.

Leimontas neitaði sök fyrir dómi og sagði að hann hefði einungis verið að reyna að róa stúlkuna og aðstoða hana. Dómurinn taldi þær skýringar ótrú­verðugar í ljósi fram­burðar vitna og annarra gagna málsins. Þá taldi dómurinn sannað að háttsemi hans hefði falið í sér kynferðis­lega áreitni og ruddalegt athæfi gagnvart barni samkvæmt almennum hegningar­lögum og barna­verndar­lögum.

Refsing Leimontas var ákveðin þriggja mánaða fangelsi en fullnustu hennar frestað til tveggja ára gegn almennu skilorði. Þá var honum gert að greiða brotaþola 400 þúsund krónur í miska­bætur auk rúmlega tveggja milljóna króna í sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra