Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Lögreglan stöðvaði matarsendingar í ólöglega námuvinnslu: „Líkin byrjuðu að hrannast upp“

Auðæfunum er misskipt í heiminum.
Auð­æf­unum er mis­skipt í heim­inum. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Maður sem stund­aði ólög­lega námu­vinnslu í Suður-Afríku lýsir óbæri­legri reynslu eftir að lög­reglan stöðv­aði mat­ar­send­ingar niður í námuna.

Tugir manna sátu og lágu saman í litlum hellum, sumir svo grunnir að þeir gátu ekki staðið upp. Loftið var blautt og stíflað og pirr­andi hósti berg­mál­aði í lok­uðu rým­inu. Þannig hefst lýs­ing sex barna föð­urs frá Suður Afríku en þar stund­aði hann ólög­legan gull­námu­gröft þar til lög­reglan stöðv­aði mat­ar­send­ingar til námu­mann­anna, með skelfi­legum afleið­ingum.

Líkum vafið í efni og tvinna voru sett til hliðar í raðir í nágrenn­inu. Slæm lykt gegn­sýrði allt, svo það var erfitt að greina hvaða lykt kom frá dauðum mönnum á móti óþvegnum lík­ömum eða rökum steini.

Hungrið óbærilegt

Námu­menn­irnir voru grind­horaðir vegna mat­ar­skorts, þar sem lög­reglan beitti sér gegn ólög­legri námu­vinnslu þeirra og stöðv­aði um tíma afhend­ingu matar niður í námurnar.

Venju­lega borð­uðu námu­verka­menn­irnir kjöt, brauð og hafra­graut eld­aðan á tjald­elda­vélum sem keyrð voru með própani, en allt þetta hafði klár­ast. Án námu­vinnslu til að dreifa hug­anum, reyktu þeir sígar­ettur og mari­júana um tíma, þar til það klárað­ist einnig.

Lýsingin, frá námu­verka­manni og úr far­síma­mynd­böndum sem send voru upp á yfir­borðið fyrr í þessum mán­uði, varpar ljósi á hryll­ing­inn sem hund­ruð manna urðu fyrir djúpt neð­an­jarðar í yfir­gef­inri námu í Suður-Afríku, eftir að lög­reglan réð­ist í aðgerð og  stöðv­aði mat og vistir til að „svæla þá út“ vegna þess að þeir voru að grafa ólög­lega eftir gulli. Mynd­böndin voru birt opin­ber­lega af hópi sem fór fyrir námu­verka­mönn­unum.

Námuverkamaður stígur fram

Lög­reglan hóf loks björg­un­ar­að­gerð fyrr í mán­uð­inum, sam­kvæmt dóms­úr­skurði, og sagði að eng­inn hafi verið skil­inn eftir neð­an­jarðar. Tugir líka voru dregin út og að minnsta kosti 87 voru látnir.

Námu­mað­ur­inn, sem ræddi við Associated Press undir nafn­leynd af ótta við hefnd­ar­að­gerðir, sagð­ist hafa komið upp á yfir­borðið á jóla­dag eftir að hafa farið inn í námuna í júlí, eytt mán­uðum neð­an­jarðar þar sem hann upp­lifði mikið hungur og sá marga félaga sína deyja úr hungri og veik­indum.

Hann er einn af næstum 2.000 ólög­legum námu­verka­mönnum sem hafa komið upp úr námunni nálægt bænum Stil­fontein síðan í ágúst á síð­asta ári þegar lög­reglan réð­ist í aðgerðir gegn henni sem hluta af stærri aðgerð sem miðar að því að takast á við útbreidd ólög­leg námu­við­skipti. Við­skiptin höfðu meira en þrjár millj­ónir doll­ara af Suður-afríska hag­kerf­inu á síð­asta ári, að sögn námu­vinnslu­ráð­herra lands­ins.

Þegar verst lét, sagði námu­mað­ur­inn, borð­uðu þeir gróft salt, það eina sem eftir var til að stöðva hungrið.

„Mér leið eins og óheppnin elti mig því ég hafði aðeins verið neð­an­jarðar í tvær vikur þegar aðgerð lög­regl­unnar hófst. Það var þá sem allt fór að ganga illa, við hættum að fá mat og við misstum sam­band við umheim­inn, það gæti bara þýtt að lög­reglan hafi komið og lík­lega hand­tekið eða fælt fólkið sem var að senda okkur mat­inn,“ sagði hann.

Líkin byrja að hrannast upp

Námu­mað­ur­inn sagði að mán­uð­irnir sem fylgdu hafi verið skelfi­legir.

„Í sept­em­ber voru hlut­irnir orðnir mjög slæmir. Fólk fór að verða svangt, það fór að veikj­ast, sumir dóu. Líkin byrj­uðu að hrann­ast upp. Það er ekk­ert verra en að sjá ein­hvern deyja og ekk­ert sem þú getur gert í því,“ sagði hann.

Námu­mað­ur­inn, sem er 40 ára gam­all sex barna faðir, fór út úr námunni í des­em­ber í gegnum sér­stakt op sem var með stál­stiga. Það er afar erfitt yfir­ferðar og hann marði hend­urnar illa á leið­inni út.

„Þegar við vorum að klifra út sáum við lík ann­arra stráka sem höfðu reynt að fara út á sama hátt. Sumir höfðu dottið niður, aðrir voru heil­leg lík en það var líka fullt af beinum, nán­ast eins og beina­grindur. Það er ekki auð­velt að fara þar í gegn, margir dóu þegar þeir reyndu að gera það,“ sagði hann.

Fátæktin er ástæðan

En hvers vegna fara námu­menn­irnir inn í þennan neð­an­jarðar hreins­un­ar­eld til að byrja með?

Ástæðan er aðal­lega pen­ingar. Ólögleg náma­vinnsla er ein stærsta tekju­lind fátækra heim­ila í bæjum sem eru nálægt sirka 6.100 ónot­uðum námum víðs­vegar um landið þar sem ólög­leg námu­vinnsla er mikil.

Námu­mað­ur­inn sagði að honum hafi verið sagt að hann gæti þénað um 5.300 doll­ara [745.763 krónur] fyrir að vinna í nokkrar vikur til mánuð í einni af dýpstu gull­námum lands­ins, þar sem engin opin­ber starf­semi er lengur. Það er gríð­ar­leg upp­hæð í Suður-Afríku, sem býr yfir miklum ójöfn­uði og eitt hæsta atvinnu­leysi í heim­inum.

Margir aðrir námu­verka­menn koma í leit að vinnu frá nágranna­löndum eins og Mósambík, Simbabve, Lesótó, Malaví og Kongó og börn eru stundum fengin í verkið. Það voru 13 börn á meðal þeirra sem komu út úr Stil­fontein-námunni á síð­asta ári.

Mmastona Mbizana, bæj­ar­búi í Khumo, sagði í sam­tali við Associated Press að tveir synir hennar hafi tekið þátt í ólög­legri námu­vinnslu vegna atvinnu­leysis og fátæktar. Tuttugu og tveggja ára sonur hennar var hand­tek­inn eftir að hafa kom­ist út úr námunni í aðgerðum lög­regl­unnar í des­em­ber og er nú laus gegn trygg­ingu.

„Ég heyrði frá ein­hverjum í hverf­inu að hann hefði farið neð­an­jarðar. Faðir hans dó í fyrra og hann var ekki einu sinni hér í jarð­ar­för­ina því hann var neð­an­jarðar í marga mán­uði. Þeir segj­ast vera að gera það vegna ástands­ins hér heima, ástandið eru erfitt,“ sagði Mbizana.

Hinn sonur Mbizana, Lucky, var hand­tek­inn í sömu námu þegar hann vann sem hlaup­ari á yfir­borð­inu og sendi mat og aðrar vistir niður til námu­mann­anna. Lucky, sem gengur um á hækjum, seg­ist hafa verið dæmdur fyrir aðild að hinni ólög­legu námu­vinnslu.

„Upp úr þurru kom lög­reglan og skaut gúmmí­kúlum og táragasi. Táragasið blind­aði mig og ég datt, fót­brotn­aði og féll,“ sagði hann.

Lucky sagði að hann væri vanur að þéna 424 dali [74.267 krónur] á mán­uði fyrir að lækka mat­væli og aðra böggla niður í námuna dag­lega, þar á meðal nið­ur­soðið græn­meti og fisk, brauð, hafra­graut, kjöt, sígar­ettur og áfengi.

Ekki benda á mig

Aðgerð­ar­sinnar kenna Suður-afrískum stjórn­völdum um mann­tjónið sem varð í Stil­fontein og segja að yfir­völd hefðu átt að bregð­ast við fyrr. Hins vegar hefur rík­is­stjórnin haldið því fram að þótt dauðs­föllin hafi verið harm­leikur, þá sé ólög­leg náma­vinnsla glæp­sam­legt athæfi sem er skað­legt fyrir efna­hag lands­ins.

Vitað er að ólög­leg náma­vinnsla í Suður-Afríku veldur víð­tækum vanda­málum fyrir nær­liggj­andi sam­fé­lög, þar á meðal ofbeld­is­glæpi og eyði­legg­ingu á innviðum sam­fé­lags­ins. Meðlimir sam­fé­lags­ins tala líka um að heyra skot­bar­daga milli keppi­nauta námu­hópa.

„Fólkið sem verður að taka ábyrgð á dauðs­föllum sem hafa átt sér stað hér eru þeir sem njóta góðs af ólög­legri námu­vinnslu,“ sagði námu­vinnslu­ráð­herr­ann Gwede Mantashe í Stil­fontein í þar síð­ustu viku.

Að sögn Senzo Mchunu, lög­reglu­mála­ráð­herra Suður-Afríku, eru yfir­völd að rann­saka alla virð­is­keðju ólög­legrar námu­vinnslu, þar á meðal hverjir græði mest á henni.

„Hvert þessar vörur fara er við­fangs­efni rann­sóknar okkar,“ sagði Mchunu og bætti við að ólög­leg náma­vinnsla væri að „ræna Suður-Afríku miklum pen­ingum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Gréta María stýrði Prís frá opnun verslunarkeðjunnar í ágúst 2024 en hætti sem framkvæmdastjóri á síðasta ári.
Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Heimur

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Í rannsókn sem birtist í JAMA Pediatrics var könnuð reynsla fólks sem hóf hormónameðferð á unga aldri. Langflestir töldu meðferðina rétta ákvörðun.
Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni