Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sigurður lögmaður segir ofbeldismenn fá skjól hjá RÚV: „Því miður getur enginn sagt RÚV upp“

Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guð­jóns­son

Hæstarréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson er æfur yfir því að RÚV sé að sýna beint frá HM í knatt­spyrnu karla sem fram fer í Katar. Á sama tíma og meintir íslenskir ofbeldis­menn fá ekki spilun á tónlist sinni hjá RÚV kaupi stofnunin sýningar­réttinn að mótinu í landi „þar sem ofbeldi og mann­réttinda­brot eru daglegt brauð“ að mati lögmannsins.

„Því miður getur enginn sagt RÚV upp, en hægt er að sniðganga útsendingar frá keppninni; gera áhorfið að engu og spilla þar með sjálfs­hátíð RÚV í boði skatt­greiðenda og sniðganga vörur þeirra sem kosta gleðina,“ segir Sigurður sem hvetur landsmenn til að fylgjast ekki með mótinu hjá RÚV.

Og hann útskýrir nánar hvers vegna í nýjum pistli á Facebook.

„Stjórn­endur RÚV hafa reynt að skapa rikishlutafélaginu þá ímynd að þar á bæ berjist starfs­manneskjur gegn hvers kyns ofbeldi. Þess vegna fá meintir ofbeldis­menn ekki tónlist sÍna spilaða hjá RÚV; þeir verða ekki til.

Stjórn­endur Ríkis­útvarpsins sáu hins vegar ekkert athuga­vert við að kaupa sýningar­rétt að HM í Katar þar sem ofbeldi og mann­réttinda­brot eru daglegt brauð og mann­virkin sem leikir fara fram byggðir af þrælum, hverra líf var einskis virði. Fyrir stuðning við þessa ofbeldis­menn kaus RÚV að greiða stórfé gegnum hin spilltu alþjóð­legu knatt­spyrnu samtök-FIFA-. Það fé bjuggu stjórn­endur RÚV ekki til heldur eru þeir að styðja ofbeldi með skattfé og auglýsingafé sem kemur frá fyrir­tækjum sem þykjast hafa einhverja samfélags­lega ábyrgð en eru með öllu sneidd henni eins og stjórn­endur RÚV sem alltaf eru til í að dansa kringum gull­kálfinn og haga seglum eftir vindi.

Til að kóróna vitleysuna og undir­strika hræsnina hefur RÚV ákveðið að senda lið af íþrótta­deild til Katar þó Ísland eigi þar engan fulltrúa, nema kannski formann KSÍ, sem seldi aröbum í nágranna ríki Katar nýlega afnot af karla­landsliði Íslands í nafni baráttu sinnar fyrir jafnrétti og bættri stöðu kvenna í landi kaup­andans.

RÚV hefur að sögn ekki náð tali af formanninum til að ræða þessa sölu og árangurinn af jafnréttis­spjalli hennar við arabana, enda fer hún alltaf í felur þegar flett er ofan af getu- og prinsipp­leysi hennar. Kannski nær íþrótta­deild RÚV viðtal við formanninn í sandinum og sólinni í Katar, þar sem þau fá sameiginlega notið afrakstur ofbeldis stjórn­valda þar í landi. Rannsóknar­blaða­mennirnir á RÚV hafa ekki treyst sér til Katar til að bera viðbjóðinn sem hefur þar viðgengist berum augum. Það er of hættulegt fyrir þær hetjur að fara mikið út fyrir dyr útvarps­hússins.

RÚV ætti fyrir hverja útsendingu frá HM í Katar í nafni baráttu fyrir bættum heimi að sýna brot af sögu þeirra í það minnsta 6.500 verkamann sem létust við gerð þeirra mann­virkja sem skapa umgjörð um útsendinguna og opna söfnunar­reikning fyrir þá sem ekkert eiga en gerðu HM í Katar mögulegt. Sú saga er nokkuð vel þekkt og hefur verið sýnd í það minnsta á norrænum sjónvarps­stöðvum nú í aðdrag­anda HM. HM er ekki hátíð fótboltans heldur minnis­varði um spillingu og mann­réttinda­brot sem RÚV vill hampa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning