Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

„Þetta eru ömurlegar aðstæður“

Björn bendir á að fyrirtækin verði að vera fjárhagslega í stakk búin að hefja rekstur á nýjan leik eftir faraldurinn.
Björn bendir á að fyr­ir­tækin verði að vera fjár­hags­lega í stakk búin að hefja rekstur á nýjan leik eftir far­ald­ur­inn.

„Við erum búin að leggja stærstum hluta okkar flota,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmda­stjóri Kynnis­ferða, í samtali við Mannlíf. Hann segir að fáeinar ferðir hafi verið farnar í upphafi vikunnar en að þetta hafi fjarað út. Þeir síðustu sem áttu bókað hafi ekki mætt. „Það er ekkert eftir af fólki.“

Starfsemi Kynnis­ferða, eða Reykjavík Excursions – Kynnis­ferðir ehf., er margþætt. Fyrir­tækið býður upp á úrval ferða og afþreyingu fyrir einstaklinga og hópa. Fyrir­tækið rekur ferða­skrifstofu, bílaleigu lang­ferðabíla og strætis­vagna, auk þvotta­stöðvar og bifreiða­verkstæðis. Björn segir að starfsemin liggi að stærstum hluta niðri en akstur um 50 strætis­vagna hafi þó haldið sér, þótt farþega­fjöldinn hafi minnkað verulega.

Fyrir­tækið er með um 400 manns í vinnu. Hann segir að um 100 manns starfi við akstur strætis­vagnanna. Þeir haldi sínu starfs­hlutfalli en að hinir 300 starfs­mennirnir fari í 25 prósent starf á móti hluta­bótum atvinnu­leysis­trygginga­sjóðs.

„Fyr­ir­tækin þurfa að vera til­búin þegar þetta fer af stað aftur þannig að þau geti kynnt sig og boðið góða þjón­ustu.“

„Þetta eru ömurlegar aðstæður og alveg fordæma­lausar,“ segir Björn um stöðu mála. Hann segir að óvissan sé verst. Þótt baráttan við veiruna gangi sæmilega hér heima þá snúist þetta hjá ferða­þjónustu­fyrirtækjum ekki síst um það hvernig stóru þjóðunum í kring um okkur vegni, til dæmis hvenær flug hefst aftur til Banda­ríkjanna og hvenær samkomu­banni í Þýska­landi verður aflétt. „Ferða­viljinn þarf að koma aftur. Á því gæti orðið einhver bið. Vonandi kemur eitthvað í júní og júlí.“

Hann segir miklu máli skipta að Íslendingar verði duglegir að ferðast innanlands á komandi mánuðum – og nýta sér íslensk ferða­þjónustu­fyrirtæki. Hann segist vissulega ekki búast við því að Íslendingar flykkist í skipulagðar dags­ferðir að Gullfossi og Geysi en segir aðra kosti í stöðunni. „Við höfum til dæmis verið að bjóða ferðir í Landmanna­laugar, Þórsmörk og Skóga á sumrin.“ Slíkar ferðir geti hentað fólki sem gengur Lauga­veginn eða vill fara í göngu­ferðir í Landmanna­laugum.

Geta lifað í þónokkra mánuði

Nánari umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Spurður hvernig fyrir­tækið sé í stakk búið til að takast á við þessa stöðu svarar Björn því til að það standi ágætlega. Launa­kostnaður hafi verið skorinn mjög niður, með áður­nefndum aðgerðum, og það sé lang­stærsti kostnaðar­liðurinn. Fyrir­tækið sé einnig að nýta sér frystingu á lánum með sex mánaða greiðslu­fresti. „Við getum lifað í þónokkra mánuði.“

Björn segir að miklu máli skipti að stjórn­völd verði fljótari að bregðast við nú en þegar banka­hrunið skall á. Mikilvægt sé að vinna hratt. Hann bendir á að fyrir­tækin þurfi að standa sæmilega þegar ferða­mennirnir fari að koma á nýjan leik. „Fyrir­tækin þurfa að vera tilbúin þegar þetta fer af stað aftur þannig að þau geti kynnt sig og boðið góða þjónustu,“ útskýrir hann. Það gangi ekki að þurrka upp allt laust fé.

Býst við gjaldþrotum

Hann á von á því að einhver ferða­þjónustu­fyrirtæki munu fara í þrot. Mörg hafi verið orðin illa stæð eftir fall WOW air síðastliðið vor. „Ég hef heyrt að einhver fyrir­tækin eigi orðið erfitt með að borga laun. Mörg fyrirtæki eru farin að fjármagna sinn rekstur á bókunum fram í tímann. Þegar þessar ferðir næstu mánuði eru afbókaðar þarf að endur­greiða fólki þær greiðslur,“ segir hann. Björn segir að innheimta sé auk þess orðin mjög þung. Út um allan heim séu fyrirtæki í sömu stöðu. „Það borgar enginn reikninga. Þetta gengur eðlilega illa og vindur upp á sig.“

Aðspurður segir Björn að fyrir­tækið hafi fyrr í mánuðinum sagt upp því fólki sem hafði nýlega hafið störf hjá fyrir­tækinu og var með minna en mánaðar­uppsagnar­frest. „Allir aðrir sem eru með mánaðar­uppsagnar­frest eða meira hafa farið í þessa 25 prósent leið með okkur.“

Lestu ítarlega umfjöllun um málið í helgar­blaðinu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra