Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hermenn skutu á hóp manna í Hafnarfirði: „Miðaði annar þeirra skammbyssunni á hann og skaut á hann“

Strandgata 4
Strand­gata 4 Mynd: fjardarfrettir.is skjáskot

Hermaður varð ungum manni að bana í Hafnar­firði. Nokkrum hermönnum hafði lent saman við hóp Íslendinga og enduðu þau mál á því að tveir hermennanna hófu að skjóta á Íslendingana með skamm­byssum sínum. Eftir skot­hríðina lá einn í valnum og tveir slasaðir. Svo virðist sem lætin hafi byrjað þegar fórnar­lambið gætti ekki að því hvar hann gekk.

Þetta gerðist þann 8. nóvember árið 1941. Alþýðu­blaðið sagði svo frá málinu á mánudeginum 10. nóvember:

„Ameríkskir hermenn skjóta á hóp manna í Hafnar­firði

Þrír af mönnunum særðust og einn þeirra mjög hættulega.
Skýrsla bæiarfógetafulltrúans í Hafnarflrði.

SÍÐASTLIÐIÐ LAUGARDAGSKVÖLD kl 10.30 gjörðist sá atburður, að tveir hermenn úr Bandaríkja­hernum á Íslandi skutu með skamm­byssu á hóp íslenzkra manna fyrir utan húsið Strand­götu 4 í Hafnar­firði. Skutu þeir 5—6 skotum áður en þeir hlupu burt vestur Vestur­götu. Tveir menn urðu fyrir skotum: Þórður Sigurðsson, Austur­götu 27 sem fékk kúluskot í gegnum magan og liggur hann nú á St. Jóseps­spítala þungt haldinn.

Sigurður L. Eiríksson Kross­eyrarveg 2 varð einnig fyrir skoti. Fór kúla upp um sólann á skó á vinstra fæti og marðist fóturinn og kom á hann smáskeina. Auk þess var hann marinn á lófa á vinstri hönd, að því er virðist eftir kúlu, sem hafði strokist með lófanum. Margir menn veittu hermönnunum eftirför vestur götuna. Þegar komið var vestur fyrir sölubúð
F. Hansens skaut annar hermaðurinn enn einu skoti á þá, sem eltu hann. Annar hermaðurinn var handsamaður uppi á Kirkju­vegi og afhentur lögreglunni. Hinn hermaðurinn hljóp vestur Kirkju­veginn og skaut þá enn einu skoti á Sigurgeir Gíslason, Austur­götu 21, sem veitti honum eftirför, og straukst kúlan við fremsta lið á þumal­fingri á vinstri hendi, og kom skeina á fingurinn. Þessi hermaður náðist ekki.

Aðdragandi að þessum atburði er sá, að margt manna var saman komið inni á veitinga­stofu við Strand­götu 6 og þar á meðal 4 Bandaríkja­hermenn, sem sátu þar við borð og voru að drekka öl. Á gólfinu stóð Þórður Sigurðssen með ölflösku í hendinni og var að tala við annan mann. Snéri Þórður baki að hermönnunum. Steig Þórður eitt eða tvö skref aftur á bak og mun þá hafa komið við einn af Bandaríkja­hermönnunum; tók hann samstundis upp skamm­byssu úr frakka­vasa sínum og otaði henni að Þórði. Reiddi Þórður þá upp ölflöskuna sem hann hafði í hendinni, og skipaði hermanninum að láta byssuna niður, og stakk hann henni tafar­laust í frakka­vasann aftur. Stuttu síðar stóðu hermennirnir upp og fóru út. Um leið og þeir fóru út, munu þeir hafa sagt Þórði að koma út með sér. Fór hann út á eftir þeim og flestir þeir, sem höfðu verið inni á veitinga­stofunni. Hermennimir gengu vestur Strand­götu og Þórður og hinir mennirnir í humátt á eftir þeim.

Þegar hermennirnir höfðu gengið lítinn spotta snéru tveir þeirra sér allt í einu við og hófu skothríð á mennina og skutu sennilega 4—5 skotum þarna. Þegar stothríðin hófst, var Þórður Sigurðsson í um tveggja faðma fjarlægð frá hermönnunum. Miðaði annar þeirra skamm­byssunni á hann og skaut á hann. Þórður hljóp þegar á hermanninn og hafði að hrista skamm­byssuna úr hendinni á honum. Um leið hlupu margir þeir, sem staddir voru
þama nálægt, af stað til þess að hjálpa Þórði, en áður en þeir komu til þeirra, hafði hermaðurinn losað sig og hlaupið burtu, vestur götuna. Þeir tveir hermenn sem voru með þeim, er að skot­hríðinni stóðu, hlupu einnig burtu, og náðust ekki. Af Þórði hefir enn ekki verið hægt að taka skýrslu sökum þess, að hann liggur þungt haidinn á St. Josephs spítala.
Þetta er samkvæmt skýrslu frá fulltrúa bæjar­fógetans í Hafnar­firði. Samkvæmt öðrum heimildum hefir blaðið frétt um áverka Þórðar, að kúlan hafi farið inn í magann hægra megin og út vinstra megin.

Þórður Sigurðsson er 22 ára að aldri.“

Þórður Sig­urð­ar­son

Nokkrum dögum síðar lést Þórður af sárum sínum. Samkvæmt blaðinu Vestur­land brutust út slagsmál milli hermannanna og Íslendinganna sem lauk með skotárás Bandaríkja­mannanna. Sagt er frá málinu í Vestur­landi hér að neðan:

„Íslenzkur maður skotinn til bana af amerískum hermanni

Síðastl. laugardag urðu skærur milli íslendinga og amerískra hermanna á veitinga­húsi í Hafnar­firði. Bárust áflogin siðan út á götu, fyrir framan veitinga­húsið. Er sagt, að amerísku hermennirnir hafi beðið þar lægri hlut. Tóku þeir þá til skotvopna. Var einn Íslendinganna, Þórður Sigurðsson, skotinn i kviðinn, en annar i ristina. Ameríska herlögreglu bar þá að þarna og flutti hermennina burt, en Þórður var tafar­laust fluttur i sjúkrahús og lá þar þungt haldinn, þar til að hann andaðist s. l. miðvikudags­kvöld af völdum skots­ársins. Yfir­hers­höfðingi ameríska setu­liðsins og sendi­herra Banda­ríkjanna hafa tjáð forsætis­ráðherra afsökun sína út af þessum atburðum og lýst því yfir, að hinir amerísku hermenn hafi borið vopn í leyfis­leysi og verði ríkt gengið eftir þvi framvegis að slíkt komi ekki fyrir.“

Hermennirnir hlutu fimm ára fangelsisdóm fyrir morðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur