Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Bjartmar heiðraður fyrir austan

„Hinn eini sanni risi í íslensku tón­list­ar­lífi.“

Bjartmar Guðlaugsson
Bjartmar Guð­laugs­son Einn af alvöru töff­urum Íslands Mynd: Facebook

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bjartmar Guð­laugs­son hlaut heið­ursverð­laun tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Köld sem fram fór í Nes­kaup­stað um síð­ustu helgi. Verð­launin eru veitt þeim sem hafa lagt sér­stakt af mörkum til tón­list­ar­lífs á Aust­ur­landi að því er fram kemur í frétt Aust­ur­fréttar um málið.

Bjartmar á rætur á Aust­ur­landi en hann bjó á Fáskrúðs­firði til sjö ára ald­urs og síðar um ára­bil á Eiðum. Í gegnum árin hefur hann einnig unnið með tón­list­ar­fólki úr fjórð­ungnum, meðal ann­ars hljóm­sveit­inni SúEllen og Bjarna Tryggva­syni söngvaskáldi.

Hann er fæddur árið 1952 og hóf tón­list­ar­feril sinn á því að semja lög og texta fyrir aðra flytj­endur. Meðal ann­ars samdi hann texta fyrir hljóm­sveit­ina Loga úr Vest­manna­eyjum á plötu sem kom út árið 1977. Síðar samdi hann lag og texta að lag­inu „Þannig týn­ist tím­inn“, sem Ragnar Bjarna­son og Lay Low gáfu út árið 2012.

Sól­ó­fer­ill Bjart­mars hófst árið 1984 þegar hann gaf út sína fyrstu plötu, Ef ég mætti ráða. Síðan þá hefur hann samið fjölda laga sem notið hafa mik­illa vin­sælda, þar á meðal „Með vott­orð í leik­fimi“, „Sum­ar­liði er fullur“ og „Týnda kyn­slóðin“.

Frá árinu 2010 hefur hann komið fram með hljóm­sveit­inni Berg­ris­anum og ferð­ast með henni um landið en Bjartmar steig einmitt á svið með sveit­inni á tón­leikum hátíð­ar­innar á föstu­dags­kvöld.

Í umsögn hátíð­ar­innar, sem Jón Björn Hákon­ar­son las upp við afhend­ingu verð­laun­anna, sagði meðal ann­ars: „Við fáum því ekki ein­ungis Berg­ris­ana heldur hinn eina sanna risa í íslensku tón­list­ar­lífi.“

Hér fyrir neðan má hlusta á lag Bjart­mars, Kaffi Tröð þar sem hann syngur um að vera ein­mana og Aust­firskur á Kaffi Tröð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027