Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Ólafur Haukur grætur prentmiðlana: „Mogginn stendur einn eftir og riðar þó til falls“

Ólafur Haukur Símonarson
Ólafur Haukur Sím­on­ar­son Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ólafur Haukur Sím­on­ar­son hefur áhyggur af þróun dag­blað­anna á Íslandi og skýtur föstum skotum Morg­un­blaðið í nýlegri Facebook-færslu.

Rit­höf­und­ur­inn og leik­rita­skáldið Ólafur Haukur Sím­on­ar­son skrifar lipra Facebook-færslu þar sem hann talar um þróun dag­blaða á Íslandi. Segir hann að í gamla daga hafi fólk haft um fjögur dag­blöð að velja úr og nefndi tvö önnur not sem fólk fann fyrir blöð­unum.

„Í eina tíð ekki ein­ungis lásu Íslend­ingar þrjú til fjögur dag­blöð dag hvern heldur vöfðu fisk­salar þessum dásam­legu frétta­miðlum utan um hið dag­lega fisk­meti, og síð­ast en ekki síst skeindu lands­menn sig nær allir á rök­föstum leið­urum blað­anna. Sic transit gloria mundi.“

Því næst beinir Ólafur Haukur beittum orðum sínum að Morg­un­blað­inu:

„Nú er hver að verða síð­astur til að lesa íslenskt dag­blað prentað á pappír. Mogginn stendur einn eftir og riðar þó til falls. Kvóta­kóngar og – drottn­ingar ku vera leið orðin á að því greiða halla­rekst­ur­inn, ekki einu sinni ein­okun Mbl á stór­fréttum af dauðu fólki og jörð­uðu nægir til að halda les­endum í krónni. Sjálfur les ég Moggann bara þegar Davíð sjálfur kemur til mín á fimmtu­dögum og treður blað­inu ásamt tugum síðna af aug­lýs­ing­arugli inn um bréfarif­una.“

Að lokum seg­ist leik­rita­skáldið gráta prent­miðl­ana.

„Í alvöru talað, er þetta ekki dálítið dap­ur­legt? Ég elska dag­blöð, löðr­andi í prents­vertu, með svita­dropa illa laun­aðra blaða­manna á hverri síðu. Bónus býður reyndar skeini­pappír á verði sem dag­blöð geta ekki keppt við. En samt græt ég prent­miðl­ana – því ég er Gut­hen­berg­maður – og ég full­yrði að Elon X Musk og önnur kríp (skítseiði) sem vilja kom­ast með raf­boð sín inn í höf­uð­skeljar alls heims­ins eru milljón sinnum meiri spell­virkjar en bæði Morg­un­blaðið, Tíminn og Þjóð­vilj­inn á sínum verstu dögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið