Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Valur Gunn­ars­son bíður upp á amer­íska veislu í til­efni útgáfu Frels­is­bjarma

Valur Gunnarsson
Valur Gunn­ars­son Valur er afar afkasta­mik­ill rit­höf­undur Mynd: Víkingur

Ný bók sagn­fræð­ings­ins, tón­list­ar­manns­ins og rit­höf­und­ar­ins Vals Gunn­ars­sonar fjallar um áhrif banda­rískrar dæg­ur­menn­ingar, sögu Banda­ríkj­anna og per­sónu­lega reynslu höf­undar. Af útgáf­unni verður til­efni til sér­stakrar veislu með banda­rísku ívafi og lif­andi tón­list.

Bókin Frels­is­bjarmar er komin út en þar beinir Valur Gunn­ars­son sjónum sínum að Banda­ríkj­unum, menn­ingu lands­ins og áhrifum þess á eigin upp­vöxt og líf.

Í bók­inni rifjar Valur upp hvernig banda­rísk leik­föng og teikni­myndir settu mark sitt á æsku hans, áður en kvik­myndir og rokk­stjörnur tóku við. Þar koma meðal ann­ars við sögu Bruce Springsteen og Rocky, ein þekktasta kvik­mynda­per­sóna banda­rískrar dæg­ur­menn­ingar.

Einnig er fjallað um sögu Banda­ríkj­anna á und­an­förnum árum, þótt Donald Trump fái ekki sér­staka umfjöllun. Valur bendir á að nóg sé fjallað um hann ann­ars staðar.

Per­sónu­leg reynsla höf­undar skipar jafn­framt stóran sess í bók­inni. Meðal þess sem hann rifjar upp er að hafa verið við­staddur aftöku í Sádi-Arabíu í kringum fyrra Persaflóa­stríðið, upp­lifun hans af hryðju­verka­árás­unum 11. sept­em­ber og tón­list­aræv­in­týri í Minn­ea­polis.

Þar spil­aði Valur á hinum fræga tón­leika­stað First Avenue, sem teng­ist tón­list­ar­mann­inum Prince og kvik­mynd­inni Purple Rain, sem var tekin upp þar að hluta.

Bandarísk veisla og lifandi tónlist

Í til­efni af útgáfu bók­ar­innar verður haldin veisla klukkan fimm á morgun í Sölku, sem gefur bók­ina út. Gestir eru hvattir til að mæta í banda­rískum klæðn­aði og boðið verður upp á veit­ingar frá Costco.

Dag­skráin teng­ist einnig tón­list­ar­minn­ingum frá Minn­ea­polis. Þar verða tón­leik­arnir sem Valur rifjar upp raktir og fluttir með lif­andi tón­list, meðal ann­ars lög Leonard Cohen í íslenskum bún­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027