Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ed Sheeran setti lestarkerfið í Kaupmannahöfn á hliðina

„Ég hef bara aldrei séð svona áður á ævinni“

Ed Sheeran
Ed Sheeran Rauð­hærða sjar­matröllið heldur tón­leika í Kaup­manna­höfn í kvöld Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Stór­stjarnan Ed Sheeran heldur tón­leika í Øresund­spar­ken í Kaup­manna­höfn í kvöld en lest­ar­kerfið þar í borg lagð­ist hálf­part­inn á hlið­ina vegna tón­leik­anna.

Íslenskt par sem er í fríi í kóngs­ins Køben­havn hafði sam­band við Mannlíf til að lýsa brjál­æð­inu sem fylgir Ed Sheeran en afar erfitt hefur reynst að fá far með lest í Kaup­manna­höfn, þar sem þær eru yfir­leitt troð­fullar af aðdá­endum rauð­hærða sjar­matrölls­ins.

Fjöldinn bíðurLest­ar­kerfið var í lama­sessi

„Það var rosa­legt að sjá allt þetta fólk sem var að fara á Ed Sheeran tón­leik­ana,“ segir íslenskur karl­maður, sem ekki vill láta nafn síns getið, í sam­tali við Mannlíf en hann er þar staddur ásamt eig­in­konu sinni. „Við löbbuðum inn í metro-lest­ar­stöð­ina og það var allt stopp. Þvílík röð sem hreyfð­ist mjög hægt áfram. Og það voru þarna örygg­is­verðir sem voru að hrópa yfir mann­fjöld­ann og segja að það verði hleypt inn í hollum og biðja fólk um að sýna þol­in­mæði. Við vissum ekk­ert hvað var í gangi en allir aðrir vissu það því þegar við komum niður þá var enn alveg pakkað og þá stendur á skjánum að allt lest­ar­kerfið sé í rugli, það séu allt of margir far­þegar út af Ed Sheeran-tón­leik­unum.“

Allt fulltTil­kynn­ing til þeirra sem biðu

Að lokum kom þó tóm lest en við­mæl­andi Mannlífs sagði að þá hefði brot­ist út fagn­að­ar­læti meðal þeirra sem biðu eftir lest.

„Þetta minnti svo­lítið á það þegar Ísland komst á EM í knatt­spyrnu karla, þetta voru rosa­leg fagn­að­ar­læti. Eins og konan mín sagði, sem hefur ferð­ast til ansi margra landa, sér­stak­lega í Evrópu, „Ég hef bara aldrei séð svona áður á ævinni“. Og ég hef ekki heldur séð neitt í lík­ingu við þetta. Það var rosa­legt að sjá þetta. Það var svo heitt og svo mik­ill raki í loft­inu og sviti, þannig að þetta var alveg ný upp­lifun. Maður hefur heyrt að danska lest­ar­kerfið sé svo frá­bært og áreið­an­legt og að ekk­ert klikki en þarna sá maður loks­ins að danska kerfið geti líka klikkað, þó það þurfi greini­lega mikið til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027