„Ég vinn í Félagsmiðstöðinni 100og 1 og Hinsegin félagsmiðstöð og ætla að læra tómstunda- og félagsmálafræði. Starf mitt er það skemmtilegasta sem ég veit um og að vinna með krökkum hefur verið gefandi lífsreynsla. Við spilum og höldum viðburði og stundum tölum við um alvarleg málefni og finnum út leiðir til að hjálpa þeim. Fyrir utan þetta hef ég gaman af tölvuleikjum, förðun og íþróttum. Ég elska allt sem er bleikt og sætt og ég er að læra að njóta þess sem karlmaður,“ segir Luca Moi Forte sem fæddist í líkama stúlku í Lissabon í Portúgal og flutti til Íslands þegar hann var 13 ára.
„Þegar ég var krakki vissi ég ekki einu sinni að það væri valkostur að vera trans. Þegar ég var barn ímyndaði ég mig sem farsæla konu í viðskiptalífinu og jafnvel þegar ég var fimm ára hugsaði ég með mér hvort það væri ekki fyndið …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir