Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Harmur á jóladag: „Það er ræs, Suðurlandið er sokkið“

Óttar Sveinsson, höfundur Útkalls­bókanna, var um borð í Urriða­fossi á jólanótt árið 1986 þegar fregnir bárust af því að flutninga­skipið M/S Suðurland sökk rúmar 300 sjómílur austan af Langanesi, miðja vegu milli Íslands og Noregs.

Ellefu skip­verjar voru um borð en áhöfnin var uppáklædd og í hátíðar­skapi í tilefni jóla­hátíðarinnar þegar slagsíða kom á skipið og það fékk á sig mikið högg. Halli var kominn á skipið og sjór flæddi stjórn­laust innbyrðis en hálftíma síðar sendi skip­stjórinn út tilkynningu um að skipið sé að sökkva, og það hratt.

Urriða­foss og Suður­landið voru bæði á leið sinni til Murmansk með síldar­tunnur en Urriða­fossinn lagði af stað um tuttugu tímum á undan Suður­landinu.

Hann segir frá þessu í viðtali sem finna má á efnis­veitu Mannlífs.

,,Ég segi ekki að það hafi verið kapphlaup en men vildu verða fyrstir inn í Murmannsk til að men þyrftu ekki að bíða fyrir utan. Þarna sáu men fram á að við þyrftum að eyða jólunum úti á sjó og svo kemur þarna aðfangadags­kvöldið og Suður­landið fer á eftir okkur þessum tímum á eftir okkur. Við sluppum við lægð og vorum komnir lang­leiðina að Noregi, við vorum þarna einhversstaðar norður við Heimskauts­bauginn, og þarna á aðfangadags­kvöld borðum við einhvern mat og allt í lukkunnar standi. Skip­stjórinn bauð okkur upp drykk að mig minnir um tíu eða half ellefu um kvöldið og þá kemur háseti niður af vaktinni og segir ,,Suður­landið var að senda út neyðar­kall”, það var sjokk.”

Urriða­foss og Suður­landið höfðu verið í miklum samskiptum þar áður og áhafnirnar í miklum samskiptum þar sem skipin voru í sömu verkefnum.

,,Ég fór niður til að leggja mig aðeins fyrir vaktina. Tuttugu mínútur í tólf banker hann á hurðina, hásetinn sem var á vaktinni, kveikir ljósið og segir ,,það er ræs, Suður­landið er sokkið.”

Þeir gátu svo ekki fylgst með gangi máli fyrr en þeir sjá það í norsku sjónvarpi að aðeins fimm úr áhöfn Suður­landsins hafði verið bjargað.

Óttar vissi það ekki þá en þrettán árum síðar skrifaði hann bók um atvikið en við fjölluðum líka um málið í Baksýnis­spegli árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjóarinn

48:09
InnlentSjóarinn

Unnar Gísli heldur alltaf í trúna: „Þú ert trúlaus stuttan tíma í sjónum“

Júníus Meyvant er tónlistar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sigur­mundsson og er borinn og barn­fæddur í Vestmanna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magnaðan sjómanns­feril á togaranum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höfuðs. Hann býr ásamt eiginkonu og börnum í...
48:09
InnlentSjóarinn

Fyrsta sjóferð Unnars Gísla misheppn­aðist illa: „Það er bara reykur út um allt“

Júníus Meyvant er tónlistar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sigur­mundsson og er borinn og barn­fæddur í Vestmanna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magnaðan sjómanns­feril á togaranum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höfuðs. Hann býr ásamt eiginkonu og börnum í...
48:09
MenningSjóarinn

Unnar Gísli útskýrir sviðs­nafnið: „Mér fannst Júníus vera svo lúðralegt nafn“

Júníus Meyvant er tónlistar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sigur­mundsson og er borinn og barn­fæddur í Vestmanna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magnaðan sjómanns­feril á togaranum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höfuðs. Hann býr ásamt eiginkonu og börnum í...
34:48
InnlentSjóarinn

Steinunn og Egill innsigluðu sambandið á siglingu: „Ákváðum að nú væri tími til að byrja saman“

Steinunn Einars­dóttir er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlaðvarps­þættinum Sjóarinn. Steinunn var sjómaður um árabil á báti foreldra sinna. Steinunn hætti á sjó eftir að hún eignaðist seinni son sin, árið 2015, eftir að hafa verið á sjó í 12 ár. Hún segir Reyni frá því hvernig hún og eigin­maður hennar, skip­stjórinn Egill Ólafsson, innsigluðu samband sitt. „Hann er skipstjóra­menntaður...
34:48
MenningSjóarinn

Útgerð foreldra Stein­unnar lauk þegar snjóflóð féll á höfnina: „Ég er stoltur Flateyringur“

Steinunn Einars­dóttir er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlaðvarps­þættinum Sjóarinn. Steinunn var sjómaður um árabil á báti foreldra sinna. Áralöng útgerðar­saga foreldra Stein­unnar, Guðrúnar Páls­dóttir og Einars Guðbjarts­sonar, endaði snögglega er snjóflóð féll á smábáta­höfnina á Flateyri árið 2020. Aðeins stóð einn bátur eftir af flota Flateyringa. „Þetta var rosalegt sjokk,“ segir Steinunn við Reyni þegar hann spyr hana út...
43:35
InnlentSjóarinn

Kristján missti allt í Hruninu: „Þegar maður vaknaði var allt farið“

Kristján Berg Ásgeirsson, eða Fiski­kóng­urinn eins og hann er gjarnan kallaður og eigandi Heitra potta, hefur verið þekktasti fisksali á Íslandi um árabil en hann hefur selt Íslendingum fisk í yfir þrjátíu ár. Frumlegar auglýsingar hans hafa gjarna vakið athygli og þá hefur hann oftar en ekki ratað í fjölmiðla vegna hinna ýmissa mála. Kristján Berg er nokkuð hispurs­laus á...
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt