Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sex fórust með Suðurlandinu á jólanótt – Reyndu að bjarga lífinu á sundi í sparifötunum

Sex fórust með Suðurlandinu á jólanótt – Reyndu að bjarga lífinu á sundi í sparifötunum

Á jóla­nótt árið 1986 sökk íslenska flutn­inga­skipið M/S Suð­ur­land um 300 sjó­mílur austan af Langa­nesi, miðja vegu milli Íslands og Noregs. Skiptið var á leið til Murmansk í Rúss­landi, fyllt salt­síld og voru ell­efu skip­verjar um borð. Áhöfnin var upp­á­klædd og í hátíð­ar­skapi í til­efni jóla­há­tíð­ar­innar. Það ger­ist síðan rétt fyrir klukkan hálf­tólf á aðfanga­dags­kvöld að skipið sendi frá sér neyð­ar­til­kynn­ingu og reynd­ist það hafa fengið á sig alvar­lega slag­síðu og orðið fyrir miklu höggi.

Halli var kom­inn á skipið og flæddi sjór stjórn­laust inn. Hálftíma síðar sendir skip­stjóri frá sér til­kynn­ingu að að skipið sé að sökkva og það hratt.

Syntu í sparifötunum

Tveimur gúmmí­björg­un­ar­bátum var þegar varpað í sjó­inn en hvarf annar strax út í vetr­ar­nótt­ina. Hinn fékk á sig nokkur göt en hélst þó á floti, hálf­fullur af sjó. Þar sem áhöfnin var spari­klædd var hún illa búinn til að flýja hið sökkvandi skip. Tíu skip­verjar reyndu að synda yfir að björg­un­ar­bátnum en síð­ast sást til skip­stjór­ans þegar brot­sjór reið yfir skipið en komust átta áhafn­ar­með­limir í björg­un­ar­bát­inn.

Þar höfð­ust þeir við við illan leik í leknum og rifnum björg­un­ar­bátnum í ell­efu klukku­stundir. Þrír þeirra lét­ust á meðan bið eftir björgun stóð.

„Báturinn var í slæmu standi. Við urðum því að standa upp­réttir í bátnum, sem er ekki það auð­veldasta við þessar kring­um­stæður, stór­sjór og ágjöf. En þeir sem sett­ust stóðu ekki upp aftur,“ var haft eftir Jóni Snæ­björns­syni, fyrsta stýri­manni, í for­síðu­frétt í Morg­un­blað­inu sunnu­dag­inn 28. des­em­ber 1986. „Þetta var vissu­lega hrika­leg staða en við trúðum því alltaf að björgun myndi ber­ast., Við vorum alltaf að tala saman,“ sagði Jón.

Jón sagði að reglu­lagi hafi farið fram nafna­kall í hópnum og sagði hann sam­stöð­una hafa haft mikið að segja. „Það var mik­ill léttir þegar þyrlan kom. Ég var hífður síð­astur um borð en þá var ég alveg búinn að vera“.

Stóra spurningin um kafbátana

Þegar neyð­ar­kallið barst var danska varð­skipið Vædderen í Færeyjum og þótti áhöfn björg­un­ar­þyrlu varð­skips­ins þótti standa sig hetju­lega við björg­un­ina og voru skip­stjórn­ar­menn á Vædderen, sæmdir orðu hins íslenska lýð­veldis fyrir þrek­virki sín við björgun skip­brots­mann­anna. Flogið var með skip­brots­menn­ina til Færeyja áður en þeir náðu í faðm ást­vina sinna á Íslandi.

Óttar Sveins­son rit­höf­undur og blaða­maður skráði sögu slyss­ins í bók­inni Útkall í Atl­ants­hafi á jóla­nótt. „Orsakir slyss­ins og þess að Suð­ur­landið fórst þessa nótt eru um margt óljósar. Skýrsla sjó­slysa­nefndar gefur til kynna að frá­gangi á farmi skips­ins hafi verið ábóta­vant og við það að skipið fékk á sig brot­sjó hafi farm­ur­inn brotnað og valdið þessu slysi. Aðrir vilja meina að breskir og rúss­neskir kaf­bátar hafi verið á svæð­inu og valdið slys­inu. Engar upp­lýs­ingar hafa feng­ist frá breska hernum sem varpa ljósi á hvað raun­veru­lega gerð­ist,“ skráði Óttar.

Hvorki hósti né stuna

„Bresk yfir­völd hafa ekki opnað bækur sínar um kaf­báta­ferðir á þessum slóðun og hvorki hefur heyrst hósti né stuna frá rúss­neskum yfir­völdum varð­andi þetta mál, allan þennan tíma,“ sagði Óttar í sam­tali við Vísi árið 2015.

Nokkrar kenn­ingar hafa komið fram í gegnum tíð­ina um hvað hafi valdið því að Suð­ur­landið sökk. Stefáni Karli Stef­áns­syni sál­uga, stór­leik­ara, var slysið löngum í huga en faðir  hans Stefán Björg­vins­son, vann að lestun Suð­ur­lands áður en skipið lagði í hinstu ferð sína, á aðfanga­dag jóla árið 1986.

„Það skiptir okkur öll miklu máli að sann­leik­ur­inn komi loks í ljós, bæði fyrir þá sem komust lífs af og einnig aðstand­endur þeirra sem komu að slys­inu á einn eða annan hátt, sem hafa ekki enn fengið að vita hvað nákvæm­lega gerð­ist,“ sagði Stefán Karl í við­talið við Vísi árið 2015.

„Ég vil ekki búa til ein­hverjar vonir um að gögn fáist frá breska flot­anum. Við vitum hins vegar að kaf­bátur breska flot­ans var þarna undir Suð­ur­land­inu umrætt kvöld. Ef við fáum úr því skorið að Bretar hafi verið þarna og ekk­ert aðhafst til að bjarga sjó­mönnum úr ísköldu Atl­ants­haf­inu er það nægi­legt til­efni til alvar­legrar milli­ríkja­deilu,“ sagði Stefán Karl.

„Við ræddum þetta mál síð­ast aðeins örfáum dögum áður en hann lést árið 2012. Þetta tók mjög á hann og ég man mæta­vel eftir jól­unum 1986 þegar hann brotn­aði saman á stofu­gólf­inu heima.“

Áfallið var mikið

Júlíus Víðir Guðnason var 23 ára gam­all þegar Suð­ur­landið fórst. Hann var þá á öðru ári í Stýri­manna­skól­anum og fór sem háseti í þessa örlaga­ríku ferð til að afla sér pen­inga í jóla­frí­inu. Hann segir þennan atburð leggj­ast þyngra á sig með hverju árinu sem líður.

„Áfallið var mikið fyrst en það hvíldi ekki eins mikið á mér þá. Svo fór maður að vinna úr þessu og svo fóru að koma þessar fréttir um kaf­báta­ferðir á þessum slóðum þar sem skipið sökk,“ segir Júlíus Víðir. „Þá var reynt að fá þessar upp­lýs­ingar en þær feng­ust ekki. Sú rann­sókn sem fór fram á til­drögum slyss­ins gerði aldrei ráð fyrir þeim mögu­leika að við hefðum kannski lent í árekstri við erlendan kaf­bát.“

Júlíus segir að þó svo að það yrði reið­ar­slag að fá þær fréttir að slysið hafi orðið út af til­gangs­lausu hern­að­ar­brölti stór­þjóða þá yrði vit­neskjan um það hvað raun­veru­lega gerð­ist ákveð­inn léttir.

„Það væri betra en að lifa við það að vita ekki hvað gerð­ist í raun og veru“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina