Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Ásgeir seðlabankastjóri: „Fólk á samfélagsmiðlum í fullri vinnu við að móðgast yfir öllum hlutum“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri segist vera kominn með þykkan skráp gagnvart allri þeirri umræðu meðal íslensku þjóðarinnar sem að honum snýr. „Ég er ekkert að vorkenna sjálfum mér en þessi umræða er alveg ömurleg,“ segir hann og heldur áfram að hvetja Íslendinga til að draga stórlega úr neyslu:

„Ég er kominn með frekar þykkan skráp. Það er ákveðinn hópur fólks sem telur það í lagi að drulla yfir fólk, embættis­menn og ráðherra, með persónu­legum svívirðingum. Ég er ekkert að vorkenna sjálfum mér en þessi umræða er alveg ömurleg. Það er of mikið í gangi. Mjög margir eiga pening til þess að eyða. Þegar ég var að tala um Tene þá var það að einhverju leyti gamanmál, en líka yfir­lýsing um það hvernig íslenska þjóðin er að eyða sínum peningum,“ sagði Ásgeir í Morgun­útvarpinu á RÚV.

Aðspurður hvort það væri mögulega frekar bankanum að kenna heldur en Tenerife-ferðum landans þegar kemur að hækkandi verðbólgu og eigna­verði á húsnæðis­markaði hafði seðla­banka­stjórinn þetta að segja:

„Það er eðlilegt að okkur sé kennt um. Fólk hefur auðvitað mismikinn húmor. Ég nefndi Tenerife bara til þess að fólk tæki eftir því sem við erum að segja í Seðla­bankanum. Hér er mikið kvart og tuð yfir stöðunni á Íslandi. Íslendingar eru ekkert vanir því að þeim sé sagt fyrir verkum. Þá er alveg sama hversu oft þessi þjóð hefur hlaupið fram úr sér, eytt peningum umfram efni og lent í allskonar veseni þess vegna, þá tekur hún því ekki vel að henni sé sagt til,“ segir Ásgeir og heldur áfram:

„Það er ákveðinn hópur af fólki á samfélags­miðlum sem er í fullri vinnu við að móðgast yfir öllum hlutum. Það er alveg hægt að missa trúna á mann­kyninu með því að fylgjast með þeim sem hafa hæst á samfélags­miðlunum.“

Ásgeir bendir á að markmið Seðla­bankans sé einfalt, að tryggja stöðu­leika í hagkerfinu. Hann er miklar áhyggjur af því að Íslendingar séu að eyða alltof miklu og komandi hækkanir í kjara­samningum fari jafnvel í enn frekari eyðslu.

„Íslenska þjóðin þarf bara að læra að við búum í heimi sem er mjög óstöðugur. Fólk má auðvitað eyða peningunum sínum en það er mjög slæmt að fara svona inn í nýtt ár. Ég þarf að sjá hvort að þessi peningar fari bara strax í neyslu. Það er hægt að semja um hvaða krónu­tölur sem er en það eru bara pappírs­peningar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis