Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Setti Prigozhin dauða sinn á svið? Fimm spurningar um meint andlát stríðsherrans

Yevgeny Prigozhin
Yevgeny Prigozhin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sögu­sagnir eru á kreiki um meint andlát Wagner-stjórn­andans Yevgeny Prigozhin er einka­flugvél í hans eigu hrapaði nærri Moskvu á föstu­daginn en allir innanborðs, 10 manns, létust. En var Prigozhin um borð?

Hinn bannfærði stríðs­herra er sagður einn af þeim látnu en margir telja hann hafa verið á svokölluðum „dráps­lista“ Vladimirs Putins Rúss­lands­forseta, eftir að Prigozhin gerði misheppnaða valda­ránstilraun fyrir tveimur mánuðum síðan. Telegram-rásir tengdar stríðs­herranum tilkynntu andlát hans á föstudags­kvöld, stuttu eftir að fréttir bárust af flug­hrapinu.

Hvað olli slysinu?

Vitni heyrðu mikinn hvell áður en þau sáu flug­vélina „falla af himnum ofan“ með miklum eldglæringum. Ljós­myndir sýndu brennandi flugvéla­flakið á akri í Tver-umdæminu en svartur reykurinn sást í margra kílómetra fjarlægð.

Rússneskir samfélags­miðlar eru fullir af vanga­veltum um að dýrt vín sem var um borð hafi í raun verið dulbúnar sprengjur á meðan aðrir telja að flugvélin hafi verið skotin niður af rússneska hernum. Putin hefur ekki enn gefið út yfir­lýsingu um málið.

Prigozhin, 62 ára, ruddist í átt að Moskvu ásamt málaliðaher sínum í júní, til þess eins og hætta valdadránið þegar aðeins 200 kíló­metrar voru eftir og snúa við, til að „hlífa rússnesku blóði“. Eftir þetta fór hann í útlegð í Belarús og hefur látið lítið fyrir sér farað síðan.

Þrátt fyrir að rússneskir embættis­menn hafi tilkynnt um dauða Prigozhin, eru ýmsum spurningum enn ósvarað. Hér eru fimm þeirra:

Hverjir voru um borð í flugvélinni?

Rússneskir embættis­menn segja að Prigozhin hafi verið meðal þeirra tíu látnu í flakinu en Alríkis­flugmála­stofnun Rússlands birti lista með nöfnum þeirra sem taldir hafa látist í flug­vélinni.

Hægri hönd Prigoszhin, Dmitry Utkin er einnig sagður meðal hinna látnu en hann er einn af stofn­endum Wagner-hópsins. Þá er Valeriy Chekalov, sem hefur áður sætt refsiaðgerðum af Banda­ríkjunum vegna tengsla hans við málaliða­herinn, verið nefndur sem einn af þremur flug­mönnum vélarinnar.

„Einka­flugvél sem fljúga átti frá Moskvu til Sánkti Péturs­borg, hrapaði til jarðar,“ sagði í rússneska ríkis­sjónvarpinu TV Rossiya24. „Tíu létust. Yevgeny Prigozhin var meðal farþega.“

Hægt var að greina númerið 795 á flaki vélarinnar, sem passar við númer flugvélar í eigu Prigozhin. Hins vegar hafa andlátin ekki fengist staðfest annarsstaðar.

Var önnur flugvél á svæðinu?

Vitni segjast hafa séð aðra flugvél sem tengist Wagner-hópnum, sikksakka yfir sama héraði, 96 kíló­metrum frá höfuð­borginni. Og nú segja heimildar­menn nánir Prigozhin að þótt að flugvélin sem hrapaði á föstu­daginn hafi verið í eigu hans, flygi hann oftast með hinni flug­vélinni.

Orðrómur er nú á kreiki um að þarna hafi Prigozhins falsað eigin dauða. Stríðs­herrann hafði snaraukið öryggi sitt og látið lítið fyrir sér fara síðan hann fór í útlegð í Belarús.

Gæti Prigozhin hafa sett andlát sitt á svið?

Keir Giles, meðlimur hugveitunnar Chatham House, varaði fólk við hugsanlegum blekkingum: „Það hefur verið gefið út að farþegi að nafni Yevgeny Prigozhin hafi verið um borð í flug­vélinni – en það er einnig vitað að fjöldi einstaklinga hafa breytt nafni sínu í Yevgeny Prigozhin, í tilraun til að fela slóð sína er hann ferðast. Við skulum ekki vera hissa ef hann poppar upp fljótlega í mynd­skeiði frá Afríku.“

Hvað gerist næst?

Putin hefur ekki enn gefið út opinbera yfir­lýsingu vegna atviksins og ekki er vitað hver næstu skref hans verða en í ljósi þess að flestir sem létust í slysinu eru taldir hafa verið hátt­settir Wagner-liðar, hefur ógnin sem stafar að forseta­stól hans, minnkað til muna.

Málaliðar úr röðum Wagner segjast nú undirbúa hefndar­aðgerðir. Í tilkynning frá Wagner, sem birtist í The Sun sagði: „Við segjum það beint út að okkur gruni að yfirvöld í Kreml, með Putin fremstan í flokki, hafi gert tilraun til að drepa hann!“ Bættu þeir við: „Ef dauði Prigozhin verður stað­festur, munum við skipuleggja aðra göngu til Moskvu!“ Þá hafa vopnaðir menn, sem segjast vera í Wagner-hópnum, deilt mynd­skeiði á netinu þar sem þeir segja meðal annars: „Næstu skref Wagner eru mikið rædd um þessar mundir. Við getum sagt ykkur eitt. Við erum að byrja, verið tilbúin.“

Frétt þessi var unnin upp úr frétt The Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár