Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kona sem myrti móður sína slapp af sjúkrastofnun – Almenningur beðinn um að nálgast hana ekki

Laura Van Marle
Laura Van Marle

Kona sem myrti móður sína slapp af sjúkra­stofnun og er nú leitað. Almenningur er beðinn um að nálgast hana ekki.

Mirror segir frá því að Laura Van Marle, 43 ára, hafi flúið frá sjúkra­stofnun þar sem hún hafði dvalið, í bænum Wellington, Somerset í Englandi en hún hafði áður verið dæmd til að dvelja ótíma­bundið á stofnuninni eftir að hún viðurkenndi að hafa myrt móður sína.

Lögreglan segir að hún hafi flúið á tveimur jafn­fljótum eftir að hafa hótað starfs­manni sjúkra­stofnunarinnar með vopni er hún var í fylgdar­leyfi. Starfs­maðurinn hlaut engin meiðsl.

Hennir er lýst af lögreglu sem 170 cm á hæð, grönn með ljóst hár. Laura sást síðast klæðast hvítum bol, gráum gallabuxna­stuttbuxum og svörtum íþrótta­skóm en gæti hafa skipt um föt.

Lögreglan í Avon og Somerset lýsa leitinni að Lauru sem „hraðri aðgerð“ og að rann­sakendur séu að skoða allar vísbendingar. Lögreglu­menn á jörðu niðri hafa fengið aðstoð frá þyrlu­sveitum lögreglunnar í kringum Wellington-svæðið, auk sérfræðinga, hunda og stjórn­enda þeirra.

Vitað er að Laura getur gengið langar vega­lengdir, gæti hafa yfirgefið Wellington-svæðið fótgangandi eða með almennings­samgöngum. Hún hefur tengsl við Hereford-skíri. Almenningur er beðinn um að nálgast hana ekki heldur hringja strax á neyðar­línuna.

Árið 2021 var Laura dæmd til ótimabundinnar dvalar á „viðeigandi sjúkra­húsi“ eftir að hún viðurkenndi að hafa stungið 69 ára gamla móður sína, Susanna Van Marle, til bana en hún fannst látin í þorpinu Cradley í Hereford-skíri, þann 26. september 2020. Hún hafði þá ferðast um 241 kílómetra til móður sinnar, frá Dorset, þar sem hún hafði valið að lifa undir berum himni, áður en hún braust inn til móður sinnar og réðist á hana með eldhús­hníf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár