Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

„Höfum ekki séð eins lofandi niðurstöður varðandi lyf sem ráðast að rótum Alzheimersjúkdóms“

Steinunn Þórðardóttir læknir.
Steinunn Þórð­ar­dóttir læknir.

Miðað við fyrstu niður­stöður rannsókna á lyfinu lecanemab virðist það hægja verulega á áhrifum sjúk­dómsins Alzheimer, en þetta kemur fram á ruv.is.

Frá þessu er sagt í nýjasta hefti New England Journal of Medicine.

Steinunn Þórðar­dóttir er formaður Lækna­félags Íslands og öldrunar­læknir, og hún segir að „ég ætla að leyfa mér að segja að vonandi er þetta byltingin sem við höfum verið að bíða eftir,“

Steinunn er bjartsýn á að ekki séu mörg ár þar til lyfið verður komið á markað:

„Maður veit það af biturri reynslu fyrri ára að maður verður að stíga varlega til jarðar. En við höfum ekki séð eins lofandi niður­stöður fyrr varðandi lyf sem eiga að ráðast að rótum Alzheimersjúkdóms. Þetta lyf hreinsar út amyloid sem hefur myndað svokallaðar fjölliður, sem eru taldar eitraðar fyrir heilann. Með því að hreinsa þetta út þá hægist á einkennum sjúk­dómsins samkvæmt þessari rannsókn. Það er eitthvað sem hefur ekki verið sýnt fram á áður, að þessi lyf sem hreinsa út amyloid geti líka haft svona klár áhrif á einkenni, það er það sem við erum að horfa til og fagna,“ segir Steinunn.

Kemur fram að svipað lyf sé komið á markað í Banda­ríkjunum; fékk lyfið bráðabirgða­leyfi fyrir einu og hálfu ári; virðist þó ekki vera jafn öflugt og nýja lyfið að sögn Stein­unnar:

„Við erum að vonast til að þetta lyf fái flýti­meðferð og komi hratt á markað,“ segir Steinunn.

Bætir því við að ef rann­sóknir benda áfram í sömu átt kæmi það Steinunni ekki á óvart að það myndi koma fremur fljótlega til Evrópu:

„Það er erfitt að segja hvort það yrði á næsta eða þarnæsta ári, en þá líka með þeim fyrirvara að það komi ekkert bakslag í þetta, þá erum við að tala um aukaverkanir og fleira.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag