Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Hug­myndin kvikn­aði af eigin reynslu Krist­ínar Guð­munds­dóttur

Kristín Guðmundsdóttir
Kristín Guð­munds­dóttir Kristín safnar nú fyrir stofnun Ýtar. Mynd: Aðsend

Nýtt bóka­for­lag, Ýtar, er í und­ir­bún­ingi með það að mark­miði að gefa út vand­aðar skáld­sögur og létt­lestr­ar­bækur á íslensku fyrir fólk af erlendum upp­runa, auk skáld­verka fyrir almennan markað. Söfnun á Karolina Fund á að fjár­magna stofnun for­lags­ins og fyrstu útgáfu þess.

Mark­miðið með Ýtum er að gera fólki á öllum aldri og á mis­mun­andi stigum íslensku­náms kleift að njóta alvöru skáld­skapar á íslensku. Jafn­framt verður lögð áhersla á útgáfu gríp­andi skáld­sagna fyrir almennan markað.

Nafnið Ýtar er fornt íslenskt orð yfir fólk og er einkum notað í skálda­máli. Aðstand­andi for­lags­ins segir nafnið end­ur­spegla hug­mynd­ina um að færa fólki sögur sem opna nýja heima, efla lestr­ar­á­huga og brúa bil milli fólks.

Bækur fyrir ólíka lesendur

Meðal verk­efna for­lags­ins er útgáfa skáld­sög­unnar Frá norðri til nýrra heima. Hún segir frá við­skipta­jöfri sem missir vinn­una í jan­úar og heldur til Skotlands á snekkju sinni. Þegar hann verður vitni að því að vinur hans er myrtur tekur ferðin óvænta stefnu og leiðir hann í heims­reisu um fimm heims­álfur. Á leið­inni bíða hans hættu­leg ævin­týri, ást og per­sónu­leg umbreyt­ing.

Einnig er stefnt að útgáfu bók­ar­innar Hvað leyn­ist í kistl­inum, sem er ætluð fólki sem er komið á þriðja stig í íslensku­námi. Hún hefur að geyma 12 stuttar og sjálf­stæðar sögur sem eiga að gera lest­ur­inn aðgengi­legan og skemmti­legan. Bókin er nú í loka­próf­arka­lestri og unnið er að kápu­hönnun.

Þá eru aðeins um 90–100 ein­tök eftir af Handan dal­anna, annarri létt­lestr­ar­bók sem hefur selst vel. Hún inni­heldur einnig 12 sjálf­stæðar sögur úr ólíkum áttum.

Hugmyndin kviknaði af eigin reynslu

Aðstand­andi for­lags­ins, Kristín Guð­munds­dóttir er mennt­aður mat­ar­tæknir og starf­aði við fagið í nokkur ár. Þar tók hún eftir því að fólk af erlendum upp­runa átti erfitt með að finna íslenskt les­efni við hæfi. Bækurnar sem stóðu til boða voru oft ætl­aðar börnum eða skrif­aðar á flóknu og gam­al­dags máli.

Árið 2014 hóf hún því að þróa hug­myndir að létt­lestr­ar­bókum fyrir þennan hóp. Fyrsta bókin, Nýjar slóðir, kom út á árunum 2019–2020 og gekk vel. Síðan hefur hann gefið út eina bók á ári og byggt upp fastan hóp les­enda og við­skipta­vina bæði hér­lendis og erlendis.

Bækurnar fjalla um fjöl­breytt efni, allt frá íslenskri sögu og menn­ingu til ævin­týra og sagna þar sem dýr og hlutir fá sjálf­stætt líf. Að ósk les­enda eru flókin orð og orða­sam­bönd einnig útskýrð í flestum bók­unum.

Kristín þekkir sjálf hvernig það er að læra nýtt tungu­mál í öðru landi og segir þá reynslu hafa haft áhrif á hug­mynd­ina. Kennarar hafi jafn­framt bent á þörf­ina fyrir bækur af þessu tagi.

Söfnun á Karolina Fund

Söfnun á Karolina Fund er ætlað að gera kleift að stofna Ýtar bóka­for­lag form­lega. Fjár­mun­irnir munu meðal ann­ars fara í skrán­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, vöru­merkja­vernd, fag­lega kápu­hönnun, prentun skáld­sög­unnar Frá norðri til nýrra heima og gerð vef­síðu.

Jafn­framt er stefnt að opn­unar- og útgáfu­hófi fyrir stuðn­ings­fólk verk­efn­is­ins.

Mark­miðið til fram­tíðar er að byggja upp fjöl­breyttan útgáfu­flokk fyrir fólk af erlendum upp­runa á öllum aldri og öllum stigum íslensku­náms, um leið og skáld­sögur fyrir almennan markað fá sinn sess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027