Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ellefu kaþólskir prestar grunaðir um misnotkun á börnum – Sannanir til um 3.200 presta til viðbótar

Jean-Pierre Ricard barnaníðngur og fyrrum kardináli.
Jean-Pierre Ricard barn­a­níðngur og fyrrum kar­dináli. Mynd: Lubbi

Frétt berst nú frá Frakk­landi sem ætti ekki að koma neinum á óvart en 11 kaþólskir prestar hafa verið nefndir vegna gruns um kynferðis­brot gegn börnum. Einn þeirra er fyrrum kardínáli.

Játning kardínála

Í tilkynningu sem BBC sagði frá, segist kardinálinn Jean-Pierre Ricard hafa misnotað 14 ára stúlku þegar hann var sóknar­prestur fyrir 35 árum síðan og að hann myndi nú hætta þjónustu sinni.

Fyrir ári síðan komst rann­sóknarnefnd yfir sönnunar­gögn sem sýndu fram á þúsundir barna­níðinga innan hinnar kaþólsku kirkju í Frakk­landi, síðustu áratugina.

Allir ellefu prestarnir verða annað hvort ákærðir eða þeim refsað af Kirkjunni.

Fréttirnar bárust er franskir biskupar héldu ráðstefnu í Lourdes í Suð-Vestur Frakk­landi. Þar sagði Erki­biskupinn Eric de Moulins-Beaufort frétta­mönnum að meðal þeirra ellefu sem sekir eru um misnotkun er fyrrum biskupinn af Créteil, Michel Santier, sem hætti á síðasta ári eftir að hann var sakaður um misnotkun fyrir tveimur áratugum síðan.

Las hann úr bréfi frá Ricard Kardinála, sem sagðist hafa hagað sér á „ámælis­verðan hátt“ gagnvart 14 ára stúlku og að framferði hans hafði óhjá­kvæmilega valdið henni alvarlegum og varanlegum afleiðingum. Hinn 78 ára Ricard, sem nú er hættur þjónustu eftir 18 ár sem biskupinn af Bodeaux, segist hafa beðið stúlkuna að fyrirgefa sé og beðist afsökunar til þeirra sem hann særði.

Mun fleiri níðingar innan kirkjunnar

Núverandi biskup af Bordeaux, Jean-Paul James, vottaði fórnar­lambinu samúð sína og ítrekaði beiðni sína til allra sem orðið hafa fyrir misnotkun í biskups­dæminu að stíga fram.

Stjórn­andi ráðstefnunnar sagði að fyrir utan kardinálann og Michel Santier, hefði sex biskupar verið sakaðir af dóms­kerfinu eða kirkjunni og einn þeirra sé látinn.

Þá er dóms­kerfið að rannsaka tvo fyrr­verandi biskupa til viðbótar og sá þriðji hefur verið tilkynntur til saksóknara, bætti hann við.

Í skýrslu sjálf­stæðrar nefndar innan kaþólsku kirkjunnar í Frakk­landi frá árinu 2021, kemur fram að um 216.000 börn hafi orðið fyrir misnotkun af völdum presta síðan 1950, flestir strákar á aldrinum 10-13 ára.

Fram kom á ráðstefnunni að sannanir væru til staðar um 3.200 ofbeldis­menn innan kirkjunnar og að búið sé að afhenda saksóknurum sannanir í 22 málum, sem leitt gæti til lögsóknar.

Frakkland er eitt af fjölmörgum löndum þar sem ásakanir um kynferðis­ofbeldi hefur skekið kaþólsku kirkjuna. Í fyrra breytti Francis páfi lögum kirkjunnar og gerði þannig kynferðis­lega misnotkun, undir­búning á ólögráða börnum fyrir kynlíf, vörslu barna­kláms og yfirhilmingu yfir misnotkun að refsiverðum brotum, samkvæmt lögum Vatíkansins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning