Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Hinsegin Austurland áberandi í sumar: „Allt var bara æði, langt framar okkar vonum“

Regnbogabraut máluð
Regn­boga­braut máluð Mynd: Hinsegin Austurland

Félagið Hinsegin Austur­land hefur verið áberandi á Austur­landi í sumar en stefna á að vera enn meira áberandi á því næsta.

Í sumar hefur Hinsegin Austur­land, sem er félag hinsegin fólks á Austur­landi, fjöl­skyldna þeirra og velunnara eins og það er orðað á Facebook-síðu félagsins, verið afar áberandi á Austur­landi. Opnunar­hátíð Regnboga­hátíðar Hinsegin Austur­lands var haldin 15. júlí síðastliðinn en einnig hefur félagið aðstoðað og tekið þátt í hinum ýmsu hátíðum víðs vegar um Austur­land í júlí.

Skellt í hátíð

Mannlíf heyrði í Töru Tjörva­dóttur, formann Hinsegin Austur­lands og spurði hana út í sumarið og hvernig fólk hafi tekið í þetta hjá þeim.

Tara Tjörva­dóttir

„Við sem sagt ákváðum að skella í eina hátíð sem væri sameiginleg fyrir allt Austur­land. Það er víða á stöðum, eins og til dæmis á Seyðis­firði sem svokölluð halarófa hefur verið farin og það er víða hinsegin menning á Austur­landi en okkur í félaginu langaði að hafa sameiginlega hátíð fyrir Austur­land sem yrði þá árlega í júlí. Og bara reyna að vera sem víðast og vera sýnileg. Í sumar verðum við á fjórum stöðum, við vorum með setningar­hátíð á Egils­stöðum þar sem við héldum fyrstu Pride-gönguna sem Egils­staðir hafa verið með, og máluðum regnboga og svo var hátíð í Tjarnar­garðinum,“ sagði Tara og játaði því að mætingin hafi verið frábær og hátíðin í alla staði vel heppnuð: „Allt var bara æði, langt framar okkar vonum.“

Félagið var einnig á Lunga á Seyðis­firði. „Svo vorum við í samstarfi við Lunga á Seyði­firði en við vorum með eitt partý-karíókí að kvöldi til en við fengum líka að vera með þann 16. júlí á fjölskyldu­hátíðinni, vorum með tónlistar­atriði og ávarp frá Guðmundi Inga Guðbrands­syni, ráðherra.“

Tina Turner hárkolla og nokkur Prococco-glös

„Í gær fengum við að vera með í undir­búningi á Frönskum dögum og fengum að ganga með þeim í kenderís-göngunni með þeim og við máluðum gangbraut,“ sagði Tara blaða­manni og bætti við: „Og svo verðum við á morgun í samstarfi við Druslu­gönguna á Bræðslunni á Borgar­firði eystri. Þá göngum við með þeim og málum svo stétt fyrir utan Fjarðar­borg. Svo verðum við með tónlistar­atriði og ávörp.“

En hefur Tara ekki fundið fyrir meðbyr frá fólki fyrir austan?

„Jú, algjör­lega. Í fyrra í kringum Hinsegin­hátíðina í Reykjavík þá gáfum við hér á Austur­landi út tónlistar­myndband og vorum með fánasölu. Og bara það, það voru allir svo gríðar­lega vel í það og allir voru að veifa fánunum. Og á laugar­deginum þegar Gleði­gangan var í Reykjavík þá enduðum við í stjórninni í heimapartýi þar sem við tókum upp á því að ganga um bæinn klukkan níu um kvöldið, svona óformlega Gleði­göngu sem var rosa gaman. Þegar mamma var búin að setja á sig Tinu Turner hárkolluna á sig eftir nokkur Procecco-glös þá var það bara „hey, nú göngum við Gleði­göngu!“. Og okkur langaði bara að gera næst svona fjölskyldu­hátíð fyrir alla í ár. Og já, við höfum fundið fyrir gríðar­legum meðbyr og það er greini­lega þörf til staðar og það vilja einhvernveginn allir vera með og allir taka svo vel í þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið