Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rekinn eftir viðtal við Víkurfréttir: „Mér sýndur hroki og dónaskapur“

Reykjanesbær
Reykja­nes­bær

Það gekk heldur betur margt á í fyrstu Idol-keppni Íslands sem Kalli Bjarna sigraði árið 2004. 

Arnar Dór Hannesson var einn af keppendum íslenska Idol-þáttarins og þótti nokkuð sigur­stranglegur en hann lenti hins vegar í því að vera rekinn úr þættinum eftir að hafa brotið fjölmiðla­bann keppninnar.

„Það birtist við mig lítið viðtal í blaðinu Víkur­fréttir í Keflavík en þar er alltaf viðtal við þá sem hafa skarað fram úr í vikunni. Í blaðinu svaraði ég nokkrum spurningum sem tengdust ekki efni Idol þáttarins. Svo fékk ég símtal frá dagskrár­stjóra Stöðvar 2 og í símtalinu var mér sagt að ég væri rekinn úr keppninni. í símtalinu var mér sýndur hroki og dóna­skapur,“ sagði Arnar Dór Hannesson í viðtali við Frétta­blaðið árið 2004 um málið.

„Þetta eru í rauninni reglur sem við verðum að hlíta hvort sem okkur líkar betur eða ver. Þær koma frá Fremantle sem á Idol­keppnina hvar sem hún er haldin í heiminum. Við fengum sendar frá þeim tvær hnaus­þykkar biblíur sem við þurftum að fara rækilega í gegnum áður en við gátum hafist handa. Þar er rækilega kveðið á um hvernig keppnin á að ganga fyrir sig,“ sagði Þór Freysson, fram­leiðandi þáttarins, í viðtali við DV.

„Mér datt ekki í hug að þetta viðtal sem er dreift á svona litlum stað skipti máli. Ég hef margsinnis hringt upp á Stöð 2 og spurt hvort ég megi gera hitt og þetta og ég spurði síðast hvort ég mætti taka þátt í leiklistar­sýningu FB og fékk leyfi til þess að fara með aðal­hlutverkið í söng­leiknum Hárinu,“ sagði Arnar um samskipti sín við Stöð 2 en hann var á því að ekki hafi verið komið eins fram við alla keppendur.

„Það er sagt að allir eigi að fá jafna fjölmiðla­umfjöllun en auðvitað er erfitt að standa undir því. Ég er ekki að reyna að réttlæta það að ég hafi farið í viðtalið en það hafa birst önnur viðtöl. Sumir keppendur hafa birst í nokkrar sekúndur á skjánum áður en þeir spreyta sig á keppninni sjálfri meðan öðrum hefur verið fylgt eftir á heima­slóðir og birst fjórfalt meir á sjónvarps­skjánum,“ en Arnar sér alls ekki eftir að hafa tekið þátt.

„Maður er búinn að eyða fjórum mánuðum í þessa vinnu og ég sé alls ekki eftir að hafa tekið þátt í keppninni. Sem betur fer er meirihluti starfs­fólksins í keppninni að vinna frábært starf.“

Síðar meir lenti Arnar í 2. sæti í þáttunum The Voice Ísland árið 2017 en hann er einnig menntaður rafvirki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni