Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Höttur dregur sig úr Gatorade-bikarnum vegna ferðakostnaðar

„Þetta er veruleiki sem félög á lands­byggðinni þurfa reglulega að glíma við“

Vilhjálmsvöllur
Vil­hjálms­völlur Annar tveggja knatt­spyrna­valla sem Höttur not­ast við Mynd: Múlaþing

Höttur hefur ákveðið að draga lið sitt úr Gatorade bikarnum vegna ágrein­ings um skiptingu ferða­kostnaðar og segir stjórn Rekstrar­félags Hattar núverandi regluverk ósann­gjarnt gagnvart lands­byggðar­félögum.

Í tilkynningu frá stjórn Rekstrar­félagsins segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir „mikla umhugsun“ og megi rekja til bikar­leiks síðasta sumars þar sem ferða­kostnaður félagsins vegna flugs og bíla­leigubíla hafi numið rúmlega einni milljón króna.

Þá þurftu leikmenn og þjálfarar að gista eftir leikinn þar sem um kvöldleik var að ræða, en sá kostnaður féll ekki undir reglur um ferða­kostnað.

Stjórn félagsins segir að einnig hafi verið aflað tilboðs í rútuferð milli Egils­staðir og Reykjavík sem hafi hljóðað upp á eina milljón króna. Slík ferð hefði þó þýtt að leikmenn þyrftu bæði að leika sama dag og þeir sætu í um átta klukku­stunda rútuferð, auk þess að missa tvo daga úr vinnu.

„Þetta er veruleiki sem félög á lands­byggðinni þurfa reglulega að glíma við,“ segir í tilkynningunni.

Fengu aðeins 250 þúsund krónur greiddar

Samkvæmt stjórn Hattar fengust aðeins 250 þúsund krónur greiddar eftir nær árs langan ágreining milli félaganna vegna ferða­kostnaðar síðasta sumars.

Vísað er til reglu­gerðar Knattspyrnu­samband Íslands þar sem segir að ferða­kostnaði skuli skipt jafnt milli liða, en að aðkomulið skuli gæta hagkvæmni í ferðamáta sínum.

Stjórn Hattar segir þó að „ekki fari saman hljóð og mynd“ ef félög geti í raun sjálf ákveðið hvort og að hvaða marki þau taki þátt í kostnaðinum.

„Fordæmið sem þessu fylgir er varasamt og sérstak­lega þungt fyrir félög sem sjá fram á löng og kostnaðarsöm ferðalög í flesta leiki,“ segir í yfir­lýsingunni.

Leikurinn gegn Haukum hefði kostað allt að 1,8 milljónir

Höttur átti að mæta Haukar í bikarnum á miðvikudag, en stjórn félagsins segir áætlaðan kostnað vegna flugs og bíla­leigubíla fyrir þann leik hafa verið um 1,3 milljónir króna.

Þar sem um kvöldleik á miðri viku var að ræða hefði einnig bæst við gisting og vinnutap leikmanna og þjálfara. Heildar­kostnaður hefði því getað numið 1,5 til 1,8 milljónum króna.

Stjórnin segir sjálfboða­liða félagsins hvorki hafa tíma né orku til að standa í innheimtum vegna slíks kostnaðar og telur eðlilegt að KSÍ hafi milli­göngu um greiðslur í stað þess að félög þurfi sjálf að leysa úr slíkum málum sín á milli.

Tekið er sérstak­lega fram að Haukar beri enga ábyrgð á ákvörðuninni en hafi þó sýnt stöðu Hattar skilning.

„Þegar allt er lagt saman telur stjórn Rekstrar­félags Hattar fjárhags­lega óábyrgt að taka þátt í keppninni á meðan reglu­verkið er ekki skýrara og ekki er tryggt að kostnaði sé skipt með sann­gjörnum hætti milli félaga,“ segir að lokum í yfir­lýsingunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Sport

Nærmynd

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarnasonar, eins af leikmönnum liðsins.

Kristian Nökkvi kemur inn í landsliðs­hópinn

Átján ára knattspyrnu­maður lést eftir höfuðhögg í miðjum leik

Brasilísk knattspyrnu­félög leita til lögreglu eftir slagsmál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heiminum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörðurinn í áfalli eftir dauðsfallið