Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vala berst fyrir mannréttindum í Íran: „Við getum ekki og hreinlega megum ekki bregðast þeim“

Vala Karen Viðarsdóttir
Vala Karen Við­ars­dóttir

„Staða Sameinuðu þjóðanna (SÞ) er auðvitað skýr. Það eru að eiga sér stað gróf mann­réttinda­brot gegn almenningi í Íran, þá sérstak­lega gegn konum og stúlkum og alvarlega vegið að frelsi þeirra. SÞ fordæma þessar öfgafullu aðgerðir íranskra yfirvalda og því ofbeldi sem beitt hefur verið gegn almenningi síðustu vikur. Nýjustu tölur segja að yfir 300 manns hafi látið lífið í mótmælunum og þar af 40 börn. Það er þyngra en tárum taki – og mann­réttinda­ráðið verður að bregðast við þessu,“ segir Vala Karen Viðars­dóttir, framkvæmda­stjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Það er auð­vitað mik­il­vægt að Ísland taki skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi og mann­rétt­inda­brotum.

Mannréttindaráð SÞ fundaði í dag um Íran að beiðni Íslands og Þýska­lands og er fundinum ætlað að knýja á um að SÞ hefji markvissa gagna­öflun varðandi framgöngu yfirvalda í Íran gegn friðsömum mótmælendum. „Það er auðvitað mikilvægt að Ísland taki skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi og mann­réttinda­brotum, hvort sem um ræðir hér heima eða á alþjóða­vísu. Utan­ríkis­ráðherra okkar, Þórdís Kolbrún, hefur allt frá upphafi mótmælanna eftir að Mahsa Amini lést, sýnt skýra afstöðu með konum og stúlkum í Íran og notað rödd sína á alþjóða­vettvangi. Fyrir það er ég þakklát. Ég hef verið að fylgjast með þessum sérstöku umræðum í mann­réttinda­ráði SÞ í Genf í dag og bind vonir um að ráðið kjósi með tillögu að rannsókn verði hafin á brotum þessum hið allra fyrsta. Við getum ekki og hreinlega megum ekki bregðast þeim.“

Að sýna stuðning

Mörg aðildar­ríki hafa haft efasemdir um að taka þetta fyrir á vettvangi mann­réttinda­ráðsins.

„Ég stend með mann­réttindum alls staðar og mun ávallt hafa það viðhorf að brot gegn mann­réttindum einstaklinga, hvort sem um ræðir brot yfirvalda á mann­réttindum sinna eigin þegna eða annars staðar, er aldrei í lagi. Með því að vera hluti af alþjóð­legum mann­réttinda­samningum þá skiptir það víst máli hvernig við háttum málunum innanlands. Alþjóð­legir samningar sem ríki eru aðilar að eru ekki til skrauts og það er mikilvægt að fordæma slík alvarleg brot – alls staðar. Írönsk yfirvöld hafa lýst mótmælunum sem innan­ríkismáli og telja það „andstætt eflingu mann­réttinda“ ef öryggisráð SÞ ræðir málið og nú mann­réttinda­ráðið. Almenn mann­réttindi og alþjóð­lega mann­réttinda­samninga á ekki að virða bara eftir hentisemi.“

Það er eng­inn stikk­frí þegar kemur að því að for­dæma slíkt.

Full­trúi Írans í mann­rétt­indaráði SÞ sagði lönd mis­nota stöðu sína í ráðinu með því að kalla til auka­fund­arins. „Ég fylgdist einmitt með yfir­lýsingu fulltrúa Írans í morgun. Viðkomandi tók fyrir Þýskaland en vissulega fjallaði hún um og fordæmdi vestræn ríki sem hún sagði að hefðu dreift fals­fréttum um stöðuna í Íran. Ef það að fordæma ofbeldi og alvarleg mann­réttinda­brot er nú talið vera misnotkun á stöðu sinni í mann­réttinda­ráðinu þá skil ég ekki fyrir hvað annað ráðið ætti að vera. Að tala með mann­réttinda­brotum eða láta sem ekkert sé og láta þar við kyrrt liggja? Það er enginn stikkfrí þegar kemur að því að fordæma slíkt.“

Hvað geta Íslendingar gert meira varðandi ástandið í Íran? „Að sýna stuðning, á blaði og í orði. Að þekkja réttindi sín – og annarra. Nota rödd sína til stuðnings mann­réttinda alls staðar. Að styðja mann­réttinda­samtök og krefja stjórn­völd um að láta sig málið varða.“

Vala er spurð hvaða áhrif allt þetta hafi á hana sem framkvæmda­stjóra Félags SÞ hér á landi.

„Við hörmum þessa stöðu sem uppi er nú í Íran og styðjum allt það hugrakka fólk sem hefur staðið upp með mann­réttindum og auknu frelsi sínu og annarra og mörg hver látið lífið fyrir það. Félagið og SÞ flytja áreiðanlegar fréttir af stöðu mála en það er alltaf mikilvægt að passa sig hvaðan upplýsingar koma áður en þeim er deilt áfram. Og munum við halda áfram að fylgjast grannt með stöðunni.“

Sterkari saman

Vala segir að hjá Félagi SÞ sé vakin athygli á starfsemi SÞ og stofnunum þeirra, þróunar­samvinnu og þátttöku Íslands á þessum vettvangi. „Við sinnum fræðslu í gegnum UNESCO-skóla um mann­réttindi, frið og heims­markmiðin um sjálfbæra þróun á leik,- grunn- og mennta­skólastigi. Einnig eigum við í góðu samstarfi við önnur félög á hinum Norður­löndunum og öðrum Evrópu­löndum og viljum auka þekkingu Íslendinga á SÞ, starfsemi og málefnum þeirra; sérstak­lega umhverfis- og þróunar­málum í tengslum við mann­réttindi og heims­markmiðin.“

Vala segist lengi hafa haft áhuga á alþjóða­málum, mann­réttindum og að vinna með ólíku fólki að sameiginlegu markmiði – að gera heiminn að betri stað fyrir alla.

Er ávallt gott að sjá hvað Íslend­ingar eru vilj­ugir að bjóða fram aðstoð sína þegar á reynir og það sjáum við vel eftir inn­rás Rússa í Úkraínu.

Heimurinn er sífellt að breytast og má þar nefna stríðið í Úkraínu. Hvernig upplifir Vala þetta í tengslum við til dæmis starf sitt?

„Já, við lifum í hröðu samfélagi sem tekur sífelldum breytingum. Áherslur breytast og fókusinn á það til að verða óskýr þegar neyðin er víða. Það er einfald­lega þannig að fólk sem þrífst í þessum geira brennur fyrir málstaðnum og samvinna milli ólíkra stofnana SÞ er undraverð. Margra áratuga reynsla og sú mikla sérfræði­þekking ólíkra málefna innan SÞ sýnir sig í þeirri breiðu samstöðu þegar neyð brýst út. Þess utan er ávallt gott að sjá hvað Íslendingar eru viljugir að bjóða fram aðstoð sína þegar á reynir og það sjáum við vel eftir innrás Rússa í Úkraínu.“

Við erum sterk­ari saman og þannig náum við árangri.

Vala vann hjá UNICEF á Íslandi í nokkur ár og sagði frá sér í viðtali við Mannlíf fyrr á þessu ári (https://gamla.mannlif.is/frettir/vala-karen-vidarsdottir-framkvaemdastjori-felags-sth-eg-vil-setja-mitt-mark-a-veroldina/). Hvernig hefur reynsla hennar í störfum tengdum alþjóða­málum breytt henni eða haft áhrif á hana?

„Hún hefur hreinlega fengið mig til þess að vilja halda áfram, ná til fleira fólks og þannig virkja breiðari samstöðu til þess að standa vörð um réttindi allra, þvert á geira og kerfi, vegna þess að við erum sterkari saman og þannig náum við árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning